Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu á toppinn-
Áfram halda hæfileikadómar stóðhesta að falla hér á HM í St. Radegund. Í flokki 6 vetra hross sýndi Sigurður V. Matthíasson hinn faxprúða Arnodd frá Auðsholtshjáleigu. Sýningin gekk vel og hlutu þeir 8,38 fyrir hæfileika og eru því með í aðaleinkunn 8,43 og eru í efsta sæti í sínum flokki.
Í öðru sæti er hin sænski Dreki fran Lind með 8,30 og í því þriðja er Bjartur von Hof Osterkamp frá Þýskalandi með aðaleinkunina 8,29.
Sýningar dönsku hrossanna gengu frekar brösulega í dag. Fengur fra Staagerup hlaut 7,94 fyrir hæfileika sem er langt frá 8,66 dómnum sem hann hlaut í sumar. Það sama má segja um Hektor fra Engholm sem fer lækkar úr 8,48 í 7,49 fyrir hæfileika.
Yfirlitssýning stóðhesta fer fram á laugardag en þá hafa Feykir, Arnoddur og félagar færi á að hækka hæfileikaeinkunn sína.
Dómur Arnodds
Sköpulag:
Höfuð 8
Háls/herðar/bógar 8.5
Bak og lend 8.5
Samræmi 8.5
Fótagerð 8.5
Réttleiki 8
Hófar 9
Prúðleiki 8.5
Sköpulag 8.5
Hæfileikar:
Tölt 8.5
Brokk 8.5
Skeið 8
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 8.5
Fegurð í reið 8.5
Fet 8
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 8
Hæfileikar 8.38
Aðaleinkunn 8.43
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH