Opið hús að Hólum
Í tilefni af fimm ára starfsafmæli Háskólans á Hólum, sem og því að 130 ár eru liðin frá stofnun Bændaskólans á Hólum, er gestum boðið á opið hús laugardaginn 1. desember nk., milli kl. 13-15.
Starfsemi skólans verður kynnt í aðalbyggingu og leiðsögn og fræðsla fer fram í hesthúsi, að er fram kemur í tilkynningu frá skólanum. Boðið verður upp á hressingu og leiki fyrir börnin. Allir eru velkomnir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH