Í sex mánaða keppnisbann

  • 17. september 2014
  • Fréttir
Féll á lyfjaprófi á Norðurlandamótinu.

Á Norðurlandamótinu þurftu sex knapar að mæta í lyfjapróf en eitt prófið reyndist jákvætt. Fannst efnið lidocaine í stóðhestinum Herði frá Blesastöðum 1A en hann var á kynbótasýningu mótsins. Knapi Harðar, Sys Pilegaard, hefur í kjölfarið verið dæmd í sex mánað keppnisbann og þarf að einnig að borga 2000 evrur í sekt eða ríflega 300 þúsund ísl.krónur.

Sys sendi frá sér yfirlýsingu eftir að niðurstöður prófsins voru ljósar þar sem hún sagðist vera í áfalli yfir niðurstöðunni. Hún hafði í hugsunarleysi notað krem í munn Harðar sem dýralæknir hafði útvegað fyrir annan hest. Henni grunaði ekki að kremið innihéldi ólögleg lyf og þætti þetta mjög leiðinlegt. Sys tók fulla ábyrgð á verknaðinum og varð strax samvinnþýð.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link