Tomma mótið 2011
Skeiðfélagið stendur fyrir skeiðleikum og opnu íþróttamóti sem haldið verður á Brávöllum á Selfossi dagana 10. og 11. september n.k. Mótið er haldið til minningar um Tómas Ragnarsson sem lést fyrir aldur fram þann 16. júlí 2010.
Keppt verður í eftirfarandi greinum ef næg þáttaka fæst:
100 m skeið
150 m skeið
250 m skeið
Tölt T1 opinn flokkur
Fjórgangur opinn flokkur
Fimmgangur opinn flokkur
Vegleg verðlaun í boði í öllum flokkum m.a 100.000 kr. peningaverðlaun ef slegið verður nýtt heimsmet í 100 m skeiði. Núgildandi heimsmet í greininni á Sigurður Sigurðarson á Drífu frá Hafsteinsstöðum á tímanum 7,18 sek sem sett var á Brávöllum 4. júlí 2007.
Skráning fer fram dagana 5. og 6. september n.k. og verður nánar auglýst síðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH