Líklegir til tilnefninga sem íþróttaknapi ársins

  • 13. október 2012
  • Fréttir
Líklegir til tilnefninga sem íþróttaknapi ársins

Uppskeruhátíð hestamanna verður haldin á Broadway nú í byrjun nóvembers. Á þeirri hátið hefur myndast sú hefð að tilnefna knapa til verðlauna, en sem fyrr eru tilnefndir fimm knapar í sex flokkum. Ákvað blaðamaður því að fara á stúfana og taka sama þá sem eru líklegir til að hljóta þessa tilnefningar en hér að neðan birtast nöfn þeirra sem ég taldi líklega til þess að hljóta tilnefningu sem Íþróttaknapi ársins, en knapar birtast í stafrófsröð.

Íþróttaknapi ársins

  • Agnar Snorri Stefánsson varð Norðurlandameistari í slaktaumtölti og fimmgangi í sumar í Eskiltuna í Svíþjóð. Einnig hefur hann landað mörgum sigrum á mótum erlendis í ár.
  • Árni Björn Pálsson varð Íslandsmeistari í tölti á Stormi frá Herriðarhóli og var í b úrslitum í tölti á Landsmótinu í Reykjavík. Einnig varð hann Reykjavíkurmeistari í tölti 1.flokk nú í vor.
  • Guðmundur F. Björgvinsson varð Íslandsmeistari í fjórgangi á Hrímni frá Ósi og var einnig í a úrslitum í fimmgangi á sama móti á Snævari-Þór frá Eystra-Fróðholti. Einnig sigraði Guðmundur fjórgang, 1.flokk á Reykjavíkurmeistaramótinu sem var haldið í Fáki í vor.
  • Jakob Svavar Sigurðsson varð tvöfaldur Íslandsmeistri nú í sumar en hann sigraði bæði fimmganginn og slaktaumatölið á Al frá Lundum. Einnig var Jakob í a úrslitum á Landsmótinu í tölti og á Íslandsmótinu á hryssunni Árborgu frá Miðey. Einnig stóð Jakob sig mjög vel í Meistaradeildinni en hann endaði annar í deildinni. 
  • Sigursteinn Sumarliðason sigraði töltið á Landsmótinu á Ölfu frá Blesastöðum, en þau vörðu titil sinn frá árinu áður. 
  • Viðar Ingólfsson varð samanlagður Íslandsmeistari í fimmgangsgreinum og gæðingaskeiði á hestinum Má frá Feti. Einnig var hann í úrslitum í tölti á Landsmóti og Íslandsmóti nú í sumar á Vornótt frá Hólabrekku.

Athuga skal að þetta er ekki tæmandi listi einungis vangaveltur hjá blaðamanni.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link