Uppskeruhátíð og frumtamninganámskeið á Akureyri
Hestamannafélagið Léttir stendur fyrir fimm vikna námskeiði í frumtamningum 10. október – 10. nóvember. Kennari námskeiðsins er Lina Eriksson reiðkennari C.
“Hver þáttakandi kemur með bandvant tryppi á tamningaraldri og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar:
Hámarksfjöldi á námskeiði 5 í hóp verð kr. 24.000.
Námskeiðið er tvisvar í viku, kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl 18.00 í Top Reiter höllinni í Lögmannshlíð. Námskeiðið hefst mánudagin 10. október kl 17.00 með bóklegum tíma og lýkur 10.nóvember og er 10 verklegir og 2 bóklegir tímar auk heimaverkefna.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Linu í síma 844 1369 eða á [email protected] fyrir 7. okt.”
Þá mun æskulýðsnefnd félagsins halda uppskeruhátíð fyrir Léttiskrakka föstudaginn 14. október kl. 19 í anddyri Top Reiter hallarinnar.
“Þar verða afhentar viðurkenningar fyrir bestu mætingu í reiðtíma, mestu framfarirnar á námskeiði og knapa ársins í barna- og unglingaflokki. Einnig verða knapamerkjaviðurkenningar, niðurstöður úr prófum og einkunnir afhentar, einnig fyrir eldri þáttakendur. Boðið verður uppá hamborgara og drykk fyrir Léttiskrakka en aðrir borga 500 kr,” segir á heimasíðu Léttis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH