Hestamannafélagið Léttir Nýárstölt Léttis í kvöld!

  • 9. janúar 2026
  • Tilkynning

Fyrsta mót ársins hjá aðildarfélögum LH fer fram í Reiðhöll Léttis í kvöld þegar Nýárstölt Léttis verður haldið.

Keppt verður í tveimur flokkum, meistara- og 1. flokki annars vegar og 2. og 3. flokki hins vegar. Alls eru 38 keppendur skráðir til leiks og hefst forkeppni kl. 18.

Völlurinn var settur upp í gær og hafa knapar verið að hita upp og æfa sína sýningu. Aðstæður eru með besta móti en hallargólfið var lagfært og endurbætt í desember síðastliðnum. Dómarar verða fimm talsins og keppt verður á 65 x 30 metra velli. Upphitunarsvæði er inni í höllinni við enda vallarins, sem hefur reynst knöpum og hestum vel undanfarin ár.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar