Íslandsmótsstaðir 2013 og 2014
Sitt sýnist hverjum um Íslandsmótsstað en kosningar um hvaða hestamannafélög munu hýsa mótin 2013 og 2014 var að ljúka.
Hestamannafélagið Léttir sótti einn um að halda Íslandsmót yngri flokka og var sjálfkjörin gestgjafi.
Hestamannafélögin Fákur og Faxi sóttu um Íslandsmót fullorðinna. Við spjalduppréttingar kom í ljós að afar mjótt var á munum, fundarstjórar töldu atkvæði Fáks í Reykjavík 52 talsins á móti 51 atkvæði Faxa í Borgarnesi. Því var nauðsynlegt að kosningar yrðu gerðar skriflegar.
Niðurstöður þeirra urðu 61 atkvæði Fáks á móti 67 atkvæðum Faxa og því er ljóst að Íslandsmót fullorðinna 2013 verður haldið í Borgarnesi.
Hestamannafélagið Sörli mun hýsa Íslandsmót fullorðinna 2014 en það sótti eitt um mótið. Hestamannafélagið Fákur mun hins vegar halda Íslandsmót yngri flokka það sama ár.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH