Úrslit folaldasýningar Adams
Hestamannafélagið Adam stóð fyrir folaldasýningu í gær að Þúfu í Kjós og var merarfolald undan Korgi frá Ingólfshvoli sigurvegari sýningarinnar:
„ Það vildi vel til að í dómarasætunum voru engir meðaljónar, en í þeim sátu stórræktandinn á Einhamri; Hjörleifur Jónsson og tamningar-og reiðsnillingurinn; Benedikt Þór Kristjánsson á Akranesi. Þakkar Adam þeim fyrir mjög gott starf og stuðninginn. Eftir að búið var að dæma öll folöldin var „skærasta stjarnan“ í eigu Adamsfélaga útnefnd. Þann titil hlaut hin gullfallega Aska frá Þúfu í Kjós. Svo skemmtilega vill til að í ættum margra folaldanna má finna Adam frá Meðalfelli. Myndir frá sýningunni fá sjá á Facebook, undir hestamannafélagið Adam.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Adam stefnir svo á að halda vetrarleika á ís í vetur, vatnið „okkar“ Meðalfellsvatn, er frosið, en það vantar bara meira af hrossum á járn! Svo nú er um að gera að negla undir gæðingana og græja sig fyrir alvöru ístölt!“ segir í frétt frá stjórn Adams.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH