Kynbótaárið 2025 og hvað er framundan 2026
Þorvaldur Kristjánsson, hrossaræktarráðunautur, verður með fyrirlestur hjá hestamannafélaginu Herði í Harðarbóli, félagsheimili Harðar, á morgun, fimmtudag 29. janúar kl. 20:00.
Þorvaldur mun fara yfir liðið sýningarár kynbótahrossa og það sem er á döfinni á komandi ári.
„Kaffi og léttar veitingar verða í boði, svo við hvetjum alla til að mæta, njóta góðs félagsskapar og fræðast! Ekki láta þetta framhjá þér fara – allir hestamenn og áhugasamir um hrossarækt eru hjartanlega velkomnir. Deilið endilega til þeirra sem gætu haft áhuga,“ kemur fram í tilkynningu frá kynbótanefnd hestamannafélagsins Harðar.
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Hringdu nýr aðalstyrktaraðili 1. deildarinnar