Hestamannafélagið Sleipnir Aðalfundur Sleipnis og Sleipnishallarinnar

  • 28. janúar 2026
  • Tilkynning
3.febrúar í Hlíðskjálf

Aðalfundur Hestamannafélagsins Sleipnis og Sleipnishallarinnar ehf. fer fram þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20:00 í Hliðskjálf að Suðurtröð 6 á Selfossi.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrslur formanns og gjaldkera, kynning ársreikninga, kosning stjórnarmanna og nefnda, auk tillögu um lagabreytingu sem snýr að tímasetningu aðalfundar.

Einnig verður haldinn aðalfundur Sleipnishallarinnar ehf. þar sem reikningar félagsins fyrir árið 2025 verða kynntir. Boðið verður upp á kaffiveitingar í hléi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta, en tillögum sem falla undir önnur mál skal skila með tölvupósti á stjorn@sleipnir.is fyrir kl. 12.00 laugardaginn 1. febrúar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar