Síðasti séns að fá afslátt í Stóðhestabók!

  • 30. janúar 2026
  • Fréttir
25% afsláttur fyrir þá sem skrá sinn stóðhest fyrir 1.febrúar

Ert þú búin(n) að tryggja þínum stóðhesti félagsskap í sumar?

Stóðhestabók Eiðfaxa er sannkölluð biblía hvers hrossaræktanda, enda eru jafnan vel á þriðja hundrað stóðhesta kynntir í bókinni, allt frá margreyndum gæðingafeðrum yfir í vonarstjörnur framtíðarinnar. Stóðhestar 2026 kemur út í mars í veglegri prentútgáfu. Ert þú búin(n) að tryggja þínum stóðhesti félagsskap í sumar?

Skráning er nú hafin í Stóðhestabókina og geta áhugasamir sent skráningu á stodhestabok@gmail.com með eftirfarandi upplýsingum:

  • Nafn og IS-númer hests.
  • Eina mynd af hestinum í góðum myndgæðum (ca. 1MB eða stærra) sem má birta.
  • Notkunarupplýsingar hests, hvar hann verður (ef það liggur fyrir) og nafn, símanúmer og/eða netfang hjá þeim sem gefur nánari upplýsingar um notkun.

Auk þess má senda eftirfarandi upplýsingar til viðbótar (valkvætt):

  • Auka mynd í góðum myndgæðum (ca. 1MB eða stærra) sem má birta.
  • Logo stóðhests/hrossaræktarbús.
  • Stutt lýsing á hesti, ca. 50 orð.

Heilsíðuauglýsing fyrir stóðhest í Stóðhestar 2026 kostar 40.000 kr. + vsk. en þeir sem skrá sig fyrir 1. febrúar nk, fá 25% afslátt. Skaffaðu þínum stóðhesti skemmtilegan félagsskap í sumar og skráðu hann tímanlega í stóðhestabókina!

Allar nánari upplýsingar veitir Maggi í síma 8933600 eða á tölvupóstfangið stodhestabok@gmail.com

Skráningu í bókina lýkur 8. mars

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar