Hringdu nýr aðalstyrktaraðili 1. deildarinnar
Það eru spennandi tímar framundan hjá 1. deildinni í hestaíþróttum en nýtt keppnistímabil hefst þann 13. febrúar næstkomandi. Ljóst er að umgjörðin verður vegleg í ár, en fjarskiptafyrirtækið Hringdu hefur gengið til liðs við deildina sem aðalstyrktaraðili. Mun deildin því bera heitið 1. deild Hringdu keppnistímabilið 2026.
Eiðfaxi heyrði í Sigurði H. Örnólfssyni, forsvarsmanni deildarinnar, og spurði hann út í nýja samninginn og veturinn framundan.
Öflugur bakhjarl lyftir deildinni
Sigurður segir samstarfið við Hringdu marka tímamót fyrir mótaröðina. „Það skiptir deildina miklu máli að fá styrktaraðila í samstarf, en að fá Hringdu sem aðalstyrktaraðila mun koma deildinni á nýtt plan,“ segir Sigurður.
Aðdragandi samstarfsins var farsæll en Sigurður bendir á að tenging fyrirtækisins við hestamennsku sé sterk. „Þeir aðilar sem standa að Hringdu eru öflugt hestafólk og þegar forsvarsmenn deildarinnar leituðu til þeirra stóð ekki á svörum,“ bætir hann við og er greinilega ánægður með nýja nafnið á deildinni.
Spenna fyrir nýrri aðstöðu og útsendingum
Keppni hefst eftir tæpar tvær vikur og segir Sigurður undirbúning hafa gengið framar vonum, sem hann þakkar öflugri og samstilltri stjórn. „Spennan er orðin mikil og ég veit að mörg liðanna eru farin að stilla saman strengi.“
Öll mót deildarinnar munu fara fram í nýrri og glæsilegri reiðhöll Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði. Sigurður segir aðbúnaðinn þar vera til fyrirmyndar, en ný upphitunaraðstaða mun nýtast keppendum frábærlega. Þá verður sýnt beint frá öllum viðburðum deildarinnar á EiðfaxaTV í vetur. „Nýr útsendingaraðili er kominn að deildinni, en það verður Eiðfaxi og væntum við mikils af þeim,“ segir Sigurður að lokum og kemur jafnframt á framfæri þökkum til allra þeirra sem hafa komið að starfinu.
Keppnisdagatalið 2026 Hér fyrir neðan má sjá dagskrá 1. deildar Hringdu fyrir árið 2026, en veislan hefst með fjórgangi föstudaginn 13. febrúar.
13. febrúar: Fjórgangur V1
27. febrúar: Gæðingalist
12. mars: Slaktaumatölt T2
26. mars: Fimmgangur F1
09. apríl: Tölt T1 og 100m skeið
18. apríl: Gæðingaskeið (Lokamót)
Hringdu nýr aðalstyrktaraðili 1. deildarinnar
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
„Góð tíðindi fyrir hestafólk“