Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Búið að opna fyrir skráningu í uppboðssæti

  • 1. febrúar 2026
  • Fréttir
Búið að opna fyrir skráningu í uppboðssæti í slaktaumatöltið í Meistaradeild Líflands

Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í slaktaumatölti T2. Keppt verður í slaktaumatölti fimmtudaginn 5. febrúar næstkomandi.
Skráningarfrestur er til þriðjudagsins 3. febrúar kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is.

Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi geti keypt sér keppnisrétt í einstaka grein. Ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Ef hæstu boð eru jöfn munu allir knaparnir hljóta keppnisrétt. Hægt er að nálgast reglur deildarinnar HÉR. ​

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar