Elimar og lið ISI Pack sigurvegarar dagsins
Fyrsta mótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar fór fram í dag í Lýsishöllinni í Reykjavík. Keppt var í fjórgangi og alls voru það 40 knapar sem tóku þátt frá 10 mismunandi keppnisliðum. Í þessar deild keppa knapar á aldrinum 13-18 ára og eru í haust tíu ár frá stofnun deildarinnar sem óhætt er að segja að hafi lyft keppendum í þessum aldursflokki á hærra stig.
Sigurvegari dagsins var Elimar Elvarsson á hryssunni Sölku frá Hólateigi, en Elimar keppir fyrir lið ISI Pack. Þau leiddu að lokinni forkeppni með einkunna 6,90 og héldu þeirri forystu í úrslitum og uppskáru þar einkunnina 6,97. Annar varð liðsfélagi Elimars, Gabríel Liljendahl Friðfinnsson sem sat Litrík frá Miðengi. hlaut hann 6,70 í forkeppni og 6,87 í úrslitum. Jafnar í þriðja til fjórða sæti urðu svo þær Álfheiður Þóra Ágústsdóttir á Óskamey frá Íbishóli og Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Þyt frá Skáney með einkunnina 6,83 í úrslitum.
Stigahæsta liðið í fjórgangi var lið ISI Pack en auk þeirra Elimars og Gabríels eru liðsmenn þess Elsa Kristín Grétarsdóttir og Jórunna Edda Antonsdóttir sem báðar kepptu til B-úrslita. Stórgóður árangur hjá þeim að allir knapar skuli hafa komist í úrslit.
Næsta mót fer fram 22.febrúar þegar keppt verður í slaktaumatölti í reiðhöll Hestamannafélagsins Sörla að Sörlastöðum.
Niðurstöður í fjórgangi
| Fjórgangur V1 | |||
| Unglingaflokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Elimar Elvarsson | Salka frá Hólateigi | 6,90 |
| 2 | Álfheiður Þóra Ágústsdóttir | Óskamey frá Íbishóli | 6,80 |
| 3-4 | Viktor Leifsson | Seifur frá Brekkubæ | 6,77 |
| 3-4 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake | Þytur frá Skáney | 6,77 |
| 5 | Gabríel Liljendal Friðfinnsson | Litríkur frá Miðengi | 6,70 |
| 6-7 | Bertha Liv Bergstað | Hólmi frá Kaldbak | 6,60 |
| 6-7 | Elsa Kristín Grétarsdóttir | Flygill frá Sólvangi | 6,60 |
| 8 | Kristín Rut Jónsdóttir | Fluga frá Garðabæ | 6,57 |
| 9 | Linda Guðbjörg Friðriksdóttir | Prins frá Ljósafossi | 6,53 |
| 10 | Jórunn Edda Antonsdóttir | Blær frá Tjaldhólum | 6,53 |
| 11 | Kristín María Kristjánsdóttir | Skjóni frá Skálakoti | 6,53 |
| 12 | Árný Sara Hinriksdóttir | Moli frá Aðalbóli 1 | 6,53 |
| 13 | Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir | Radíus frá Hofsstöðum | 6,43 |
| 14-15 | Fríða Hildur Steinarsdóttir | Frami frá Hjarðarholti | 6,40 |
| 14-15 | Elísabet Líf Sigvaldadóttir | Fenrir frá Kvistum | 6,40 |
| 16 | Loftur Breki Hauksson | Fannar frá Blönduósi | 6,37 |
| 17 | Arnór Darri Kristinsson | Brandur frá Akureyri | 6,33 |
| 18 | Sigríður Fjóla Aradóttir | Kilja frá Korpu | 6,27 |
| 19-20 | Erla Rán Róbertsdóttir | Greipur frá Haukadal 2 | 6,17 |
| 19-20 | Ylva Sól Agnarsdóttir | Eik frá Meðalfelli | 6,17 |
| 21-23 | Gabríela Máney Gunnarsdóttir | Sjarmur frá Böðmóðsstöðum 2 | 6,13 |
| 21-23 | Sigurður Ingvarsson | Liljar frá Varmalandi | 6,13 |
| 21-23 | Apríl Björk Þórisdóttir | Lilja frá Kvistum | 6,13 |
| 24-25 | Sigríður Elva Elvarsdóttir | Muni frá Syðra-Skörðugili | 6,10 |
| 24-25 | Eyvör Vaka Guðmundsdóttir | Skeleggur frá Ósabakka 2 | 6,10 |
| 26 | Hrefna Kristín Ómarsdóttir | Aðventa frá Víðidal | 6,07 |
| 27 | Hilmir Páll Hannesson | Grímur frá Skógarási | 6,03 |
| 28-29 | Emma Rún Sigurðardóttir | Valíant frá Efra-Langholti | 6,00 |
| 28-29 | Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir | Baldur frá Margrétarhofi | 6,00 |
| 30-31 | Hjördís Antonía Andradóttir | Ágúst frá Oddhóli | 5,97 |
| 30-31 | Una Björt Valgarðsdóttir | Sigurpáll frá Varmalandi | 5,97 |
| 32 | Svava Marý Þorsteinsdóttir | Þyrla frá Haukholtum | 5,90 |
| 33 | Sól Jónsdóttir | Mær frá Bergi | 5,83 |
| 34 | Bryndís Anna Gunnarsdóttir | Foringi frá Laxárholti 2 | 5,77 |
| 35 | Ragnar Dagur Jóhannsson | Alúð frá Lundum II | 5,70 |
| 36 | Elísabet Benediktsdóttir | Jarl frá Hrafnagili | 5,63 |
| 37 | Íris Thelma Halldórsdóttir | Skuggi frá Austurey 2 | 5,60 |
| 38 | Hákon Þór Kristinsson | Tenór frá Litlu-Sandvík | 5,10 |
| 39 | Ísabella Helga Játvarðsdóttir | Ylva frá Margrétarhofi | 4,00 |
| 40 | Bjarni Magnússon | Pjakkur frá Gunnarsstöðum | 3,93 |
| B úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 6 | Elsa Kristín Grétarsdóttir | Flygill frá Sólvangi | 6,87 |
| 7 | Kristín Rut Jónsdóttir | Fluga frá Garðabæ | 6,70 |
| 8 | Jórunn Edda Antonsdóttir | Blær frá Tjaldhólum | 6,67 |
| 9 | Linda Guðbjörg Friðriksdóttir | Prins frá Ljósafossi | 6,60 |
| 10 | Bertha Liv Bergstað | Hólmi frá Kaldbak | 6,50 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Elimar Elvarsson | Salka frá Hólateigi | 6,97 |
| 2 | Gabríel Liljendal Friðfinnsson | Litríkur frá Miðengi | 6,87 |
| 3-4 | Álfheiður Þóra Ágústsdóttir | Óskamey frá Íbishóli | 6,83 |
| 3-4 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake | Þytur frá Skáney | 6,83 |
| 5 | Viktor Leifsson | Seifur frá Brekkubæ | 5,47 |
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Ráslisti fyrir fjórgang Meistaradeildarinnar