Á mannlegum nótum – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV
Eiðfaxi TV hleypir af stokkunum nýrri viðtals þáttaröð undir nafninu „Á mannlegum nótum“ þar sem hestafólk héðan og þaðan gefur sér góðan tíma og spjallar um lífið og tilveruna frá ýmsum hliðum. Umsjónarmenn eru nokkrir, m.a. Heimir Gunnarsson, Hrafnkell Guðnason og Hulda G. Geirsdóttir
Í fyrsta þættinum ræðir Heimir Gunnarsson við hinn 95 ára gamla Göran Häggberg í Svíþjóð sem hefur verið viðloðandi Íslandshestaheiminn í áratugi og hefur frá mörgu að segja.
Á mannlegu nótunum með Heimi Gunnars.
Í tilefni af 50 ára afmæli sænska íslandshestafélagsins (SIF) settist Heimir niður með Göran og fóru þeir vítt og breitt yfir sögu íslenska hestsins í Svíþjóð.
Göran sem var 94 ára gamall þegar viðtalið er tekið er einn af helstu frumkvöðlum Svíþjóðar í Íslandshestamennsku. Hann flutti mikið af íslenskum hestum til Svíþjóðar , ræktaði hross og seldi. Þá er hann faðir þeirra Peter Häggberg og Johan Häggberg sem báðir lengi vel meðal helstu reiðmanna þar í landi og eru í dag starfandi alþjóðlegir íþróttadómarar. Göran fer í viðtalinu yfir ævi sína sem að stórum hluta er samofin þróun íslandshestamennskunnar í Svíþjóð og segir frá kómískum uppákomum í tengslum við hestakaup, dómstörf og fleira.
Viðtalið er á sænsku en er birt bæði með íslenskum og enskum texta.
Á mannlegum nótum – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Barist til þrautar í Meistaradeild KS