Vetrarleikar Hornfirðings
Vetrarleikar Hornfirðings er mótaröð þriggja móta sem byrjar sunnudaginn 14. febrúar n.k. og þar verður keppt á ís, ef veður leyfir, í tölti og A- og B-flokki. Á vetrarleikum II, sunnudaginn 14. mars verður einnig keppt á ís, ef veður leyfir, í sömu greinum og áður + unghrossaflokk og á vetrarleikum III, laugardaginn 27. mars verður töltkeppni, A- og B-flokkur og Smali (þrautabraut).
Á vetrarleikunum verður stigakeppni milli knapa, hesta og býlis/hesthúss og þessir aðilar safna stigum fyrir hverja grein og hvert mót sem þeir taka þátt í. Keppt verður í eftirfarandi flokkum í tölti: Barnaflokkur, (13 ára á árinu og yngri), Unglingaflokkur, (14-17 ára á árinu), Ungmennaflokkur/1.flokkur, (18 ára og eldri) og Opinn flokkur, (14 ára og eldri).
Í lok mótaraðarinnar, þ.e. laugardagskvöldið 27. mars verður haldin kjötsúpuveisla og verðlaunaafhending fyrir þátttakendur. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag keppnisgreina, stigagjöf, verðlaun ofl. verður auglýst síðar.
Mótaskrá Hornfirðings árið 2010
- Vetrarleikar I, sunnudaginn 14. febrúar, Ístölt, A- og B-flokkur
- Vetrarleikar II, sunnudaginn 14. mars, Töltkeppni og A, B fl. og unghrossaflokkur
- Vetrarleikar III, laugardaginn 27. mars, Töltkeppni, A, og B fl. og Smali (þrautabraut) (Um kvöldið verður kjötsúpuveisla, verðlaunaafhending fyrir mótaröðina og stiginn dans)
- Firmakeppni Hornfirðings, fimmtud. 22. apríl Sumardagurinn fyrsti. (Tví-Þrígangur)
- Æfingamót, 1. – 2. maí + barna-, unglinga- og ungm. + gæðingakeppni A- og B fl. (Ath. með reiðkennara / dómara með einkatíma, fyrirlestur ofl. 1-2 maí)
- Félagsmót Hornfirðings, LM úrtaka, helgina 12. – 13. júní 2010
- Síðsumarsmót – uppskeruhátíð Hornfirðings, laugardaginn 14. ágúst 2010
Ath! Vetrarleikar I, II og III er röð þriggja móta þar sem a) knapar, b) hestar og c) býli/hesthús, keppa til verðlauna og safna um leið stigum fyrir alla mótaröðina.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum í tölti:
- Barnaflokkur, 13 ára á árinu og yngri,
- Unglingaflokkur, 14-17 ára
- Ungmennaflokkur / 1. flokkur, 18 ára og eldri
- Opinn flokkur, 14 ára og eldri
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH