Kristján og Kristín verðlaunuð
Gæðingakeppni Léttis var haldið í gær, laugardag.
„Mikið var um dýrðir og voru allir knapar félagi sínu til mikils sóma. Hart var barist í öllum flokkur og oft voru það aðeins örfáar kommur sem skildu að sætin,“ segir í frétt frá Létti. Kristján Árni Birgisson hlaut Djáknabikar en bikarinn fær það barn eða unglingur sem hæstu einkunn hlýtur í forkeppni. Kristín Ellý Sigmarsdóttir hlaut Álfsbikarinn en hann er veittur glæsilegasta pari í barna eða unglingaflokki að mati dómara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH