Katla Sif og lið Fornusanda á toppnum í 1.deild Hringdu
Katla Sif Snorradóttir og Sæmar frá Stafholti í keppni í gæðingalist. Ljósmynd: Draumfaramyndataka/Gunnhildur Ýrr
Tveimur keppnisgreinum er nú lokið í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum en þær eru fjórgangur og Gæðingalist. Í næstu viku, þann 12.mars, verður svo keppt í slaktaumatölti en keppnisgreinar í deildinni eru alls sjö talsins.
Eins og staðan er núna er það Katla Sif Snorradóttir sem leiðir í einstaklingskeppninni með 20 stig. En hún og Sæmar frá Stafholti unnu keppni í Gæðingalist og urðu í þriðja sæti í fjórgangi. Góð byrjun á keppnistímabilinu hjá Kötlu. Í öðru sæti er Lea Schell sem reið til úrslita í fjórgangi á Húna frá Efra-Hvoli og í þriðja sætinu í gæðingalist. Í þriðja sæti er svo Þórdís Inga Pálsdóttir sem sigraði keppinauta sína í fjórgangi á Móses frá Flugumýri.
Í liðakeppninni er lið Fornusanda í forystu með 119 stig. Liðsmenn þess eru Sigvaldi Lárus Guðmundsson, Ólafur Þórisson, Lea Schell, Hlynur Guðmundsson og Katrín Sigurðardóttir. Í öðru sæti er lið Hrímnis með 106,5 stig og í því þriðja Kidka/Hestakofi með 77,5 stig.

Lið Fornusanda. Ljósmynd: Draumfaramyndataka/Gunnhildur Ýrr
10 efstu í einstaklingskeppni
| Knapi | Stig |
| Katla Sif Snorradóttir | 20 |
| Lea Schell | 13,5 |
| Þórdís Inga Pálsdóttir | 12 |
| Ólafur Þórisson | 11,5 |
| Benedikt Ólafsson | 10 |
| Ólöf Rún Guðmundssdóttir | 10 |
| Fredrica Fagerlund | 9 |
| Sigvaldi Lárus Guðmundsson | 6 |
| Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir | 5,5 |
| Hermann Arason | 4,5 |
Staðan í liðakeppni
| Lið | Stig |
| Fornusandar | 119 |
| Hrímnir | 106,5 |
| Kidka/Hestakofi | 77,5 |
| Vindás/Stóðhestaval | 68,5 |
| Sportfákar | 64 |
| HorseDay | 61 |
| Hringdu | 58,5 |
| Tommy Hilfiger | 45 |
Katla Sif og lið Fornusanda á toppnum í 1.deild Hringdu
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum