Vallarmótið um helgina

  • 28. ágúst 2015
  • Fréttir
Allir velkomnir, skráning á staðnum og engin keppnisgjöld.

Hið árlega og vinsæla Vallarmót verður haldið, laugardaginn 29 ágúst kl. 13:00. Keppnin mun fara fram á beinni braut en pollar og börn á hringvelli eða inn í reiðhöll (fer eftir veðri). Í pollaflokki er leyfilegt að teyma undir, börn sýna hægt tölt og frjálsa ferð á hringvelli. Í eldri flokkum er riðið hægt tölt og frjáls ferð á beinni braut.

Bjórreiðin vinsæla verður á sínum stað í dagsskrá.

Meðan á mótinu stendur verður boðið uppá grillaðar pylsur og gos eða ávaxtasafa.

KEPPT VERÐUR Í EFTIRFARANDI FLOKKUM:
Pollaflokk
Barnaflokk
Unglingaflokk
Ungmennaflokk

Áhugamannaflokk
Opnum flokki
100 m skeiði
Bjórreið

Skráning fer fram á staðnum milli kl 12:00 og 13:00

ATH. EKKERT SKRÁNINGARGJALD

Völlur er í Rangárþingi Eystra, 5 km norðan við Hvolsvöll. Frá Hvolsvelli er ekinn Fljótshlíðarvegur rétt út fyrir þorpið, en þar liggur vegur merktur 262 Völlur. Eftir 5km er afleggjari til vinstri, merktur Völlur hrossarækt.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link