Bændasamtök Íslands Framboð til formanns deildar hrossabænda BÍ

  • 8. mars 2026
  • Fréttir
Ólafur Þórisson, hrossaræktandi í Miðkoti, býður sig fram sem formaðu hrossaræktardeildar innan Bændasamtaka Íslands.

Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands verður haldið dagana 23. – 25. mars næstkomandi á Hótel Natura í Reykjavík. Deildarfundur hrossabænda er verður á þriðjudaginn 24. mars.

Núverandi formaður er Nanna Jónsdóttir en Eiðfaxi hefur ekki fengið það staðfest hvort Nanna býður sig áfram fram til formanns.

Hér fyrir neðan er framboðstilkynning Ólafs

„Ég, Ólafur Þórisson hef tekið þá ákvörðun að bjóða mig fram til formanns hrossaræktardeildar Bændasamtaka Íslands eftir að þónokkrir einstaklingar höfðu samband við mig og skoruðu á mig að bjóða mig fram til formanns. Ég lifi og hrærist af hrossarækt og tengdri starfsemi og þekki starfssviðið töluvert eftir að hafa verið í félagsmálum hestamanna á mörgum sviðum. Mig langar að leggja mitt af mörkum til að sýnileiki hrossaræktarinnar í samfélaginu verði sem mestur og við munum halda áfram að þróast og fylgja þeim málefnum sem munu hjálpa hrossaræktinni að lifa og dafna sem best í framtíðinni. Virkja grasrótina, styrkja grunnstoðir og vera sýnileg á sem flestum stöðum. Hestamennska á Íslandi og út um allan heim byggist á því að hrossarækt sé stunduð og til hennar sé vandað til verks þannig að sem flestir fái að njóta Íslenska hestsins til framtíðar.“

„Fyrir þá sem ekki þekkja mig þá bý ég í Miðkoti í Landeyjum (Rangárþingi Eystra). Þar rek ég ásamt konu minni Söru Maagaard Nielsen hrossarækt og tamningarstöð til fjölda ára, saman eigum við þrjú börn.“

Ólafur Þórisson, Miðkoti

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar