Gæðingamót Dreyra

  • 4. júní 2013
  • Fréttir
Gæðingamót Dreyra

Hestamannafélagið Dreyri hélt sína árlegu gæðingakeppni laugardaginn 1. júní sl. Að þessu sinni var keppnin jafnframt úrtaka fyrir Fjórðungsmót Vesturlands, sem haldið verður að Kaldármelum dagana 3.-7. júlí. Keppt var í fjórum flokkum þ.e. A-flokki gæðinga, B-flokki gæðinga, ungmennaflokk og unglingaflokk, en enginn keppandi var í barnaflokki og féll hann því niður. Úrslit urðu sem hér segir:

A-flokkur

1. Prins frá Skipanesi, knapi Svandís Lilja Stefánsdóttir                      einkunn 8,44
2. Niður frá Miðsitju, knapi Ólafur Guðmundsson                                 einkunn 8,22
3. Brjánn frá Akranesi, knapi Sigríður Helga Sigurðardóttir                 einkunn 8,12
4.Taktur frá Fremri-Fitjum, knapi Benedikt Þór Kristjánsson   einkunn 8,09
5. Hreimur frá Reykjavík, knapi Valdís Ýr Ólafsdóttir                einkunn 7,93

B-flokkur

1. Völuspá frá Skúfslæk, knapi Torunn Hjelvik                           einkunn 8,41
2. Hlýri frá Bakkakoti, knapi Ólafur Guðmundsson                               einkunn 8,38
3. Bruni frá Akranesi, knapi Sigríður Helga Sigurðardóttir                   einkunn 8,25
4. Faldur frá Hellulandi, knapi Benedikt Þór Kristjánsson                  einkunn 8,13
5. Hlynur frá Einhamri 2, knapi Snorri Elmarsson                                  einkunn 7,94

Unglingaflokkur

1. Viktoría Gunnarsdóttir og Ylur frá Morastöðum                                 einkunn 8,08
2. Logi Örn Axel Ingvarsson og Blær frá Sólvöllum                                 einkunn 8,00
Þau kepptu bæði á tveimur hestum og stóðu sig líka mjög vel á þeim.

Ungmennaflokkur ekki riðinn úrslit

1. Svandís Lilja Stefánsdóttir og Brján frá Eystra-Súlunesi I                einkunn 8,37
1. Svandís Lilja Stefánsdóttir og Massi frá Melaleiti                            einkunn 7,70

 

Auk þess var Svandís Lilja Stefánsdóttir valin knapi mótsins, Brjánn frá Eystra Súlunesi valin glæsilegasti hesturinn og Völuspá frá Skúfslæk var hæðst dæmda hryssan.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link