Hvaða stóðhestar skila keppnishrossum?
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu á flest afkvæmi stóðhesta á síðustu tveimur Íslandsmótum, á myndinni er hann setin af Þórdís Erlu Gunnarsdóttur
Kveikjan að þessari samantekt var útsending EiðfaxaTV frá fjórgangi í Suðurlandsdeildinni í gærkvöldi. Góðir þulir kvöldsins, þeir Erlendur Árnason og Flosi Ólafsson, ræddu um það nokkrum sinnum í útsendingunni að hinn og þessi stóðhesturinn skilaði af sér mikið af keppnishrossum. Það vakti fortvitni greinarhöfundar á að skoða þetta nánar.
Til grundvallar voru notaðir ráslistar frá Íslandsmótum áranna 2024 og 2025 í öllum aldursflokkum (barna-, unglinga-, ungmenna- og fullorðinsflokki). Valið á mótunum er engin tilviljun; Íslandsmótið er ákveðinn gæðastimpill. Til þess að komast þangað þarf að lágmarki vissan árangur í fullorðins- og ungmennaflokki og það að börn og unglingar mæti með tiltekin hross til leiks segir mikið um gæði þeirra sem keppnishross og að þeim sé treyst fyrir okkar yngri knöpum.
Gögnin voru hreinsuð þannig að hvert hross kæmi aðeins fyrir einu sinni, óháð því hve oft það keppti eða á hvoru árinu. Heildarfjöldi hrossa á þessum tveimur mótum var því 725 talsins, og reyndust feður þeirra vera 328 mismunandi stóðhestar. Fjöldi feðra sýnir því fram á þá miklu breidd sem er í stóðhestaflórunni á Íslandi og að margir mismunandi stóðhestar gefi af sér góð keppnishross.
Topplistinn
Þegar litið er á þá hesta sem eiga fimm eða fleiri afkvæmi á þessum tveimur mótum, kemur í ljós að efstur á blaði er Gaumur frá Auðsholtshjáleigu með 18 afkvæmi, en fast á hæla hans koma þeir Stáli frá Kjarri (17) og Spuni frá Vesturkoti (16).
Listi yfir stóðhesta sem eiga 5 afkvæmi eða fleiri:
| Nafn stóðhests | Fjöldi afkvæma |
| Gaumur frá Auðsholtshjáleigu | 18 |
| Stáli frá Kjarri | 17 |
| Spuni frá Vesturkoti | 16 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 14 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum I | 13 |
| Ómur frá Kvistum | 13 |
| Skýr frá Skálakoti | 13 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 12 |
| Óskasteinn frá Íbishóli | 12 |
| Hreyfill frá Vorsabæ II | 11 |
| Konsert frá Hofi | 10 |
| Jarl frá Árbæjarhjáleigu II | 9 |
| Kiljan frá Steinnesi | 9 |
| Rammi frá Búlandi | 9 |
| Auður frá Lundum II | 8 |
| Pistill frá Litlu-Brekku | 8 |
| Aðall frá Nýjabæ | 7 |
| Álfur frá Selfossi | 7 |
| Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum | 7 |
| Kveikur frá Stangarlæk 1 | 7 |
| Sólon frá Skáney | 7 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 7 |
| Hágangur frá Narfastöðum | 6 |
| Straumur frá Feti | 6 |
| Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum | 6 |
| Vilmundur frá Feti | 6 |
| Adam frá Ásmundarstöðum | 5 |
| Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum | 5 |
| Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum | 5 |
| Framherji frá Flagbjarnarholti | 5 |
| Korgur frá Ingólfshvoli | 5 |
| Kvistur frá Skagaströnd | 5 |
| Loki frá Selfossi | 5 |
| Skaginn frá Skipaskaga | 5 |
Rétt er að taka fram að samantekt þessi er til gamans gerð og með fyrirvara um mannleg mistök við vinnslu og hreinsun gagnanna. Listinn takmarkast einnig við Íslandsmót síðust tveggja ára. Fróðlegt væri í framtíðinni að skoða hvernig sambærilegur listi liti út ef öll mót á Íslandi yrðu tekin fyrir, þar með talið gæðingakeppnir, til að fá enn stærra og ítarlegra svar við því hvaða hestar eru að skila flestum gripum í keppnisbrautina.
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Åsa og Sigurður unnu sína flokka
Lágmörk á Íslandsmót fullorðinna og ungmenna