Meistari Meistaranna

  • 12. apríl 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Ráslisti fyrir fjórganginn.

Nú styttist í eitt mest spennandi mót vetrarins – Meistari Meistaranna 2016 – sem haldið verður í Samskipahöllinni í Spretti föstudaginn 15 apríl kl. 19:00.

 

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að úrslit eru riðinn í hverri grein og eru það sigurvegarar í úr mótaröðum sem haldnar hafa verið í vetur á landinu sem hafa keppnisrétt. 

 

Í dag kynnum við til leiks þá sem keppa í fjórgangi.

 

Fjórgangurinn verður hrikalega sterkur og til leiks mæta:

 

Vesturlandsdeildin                :  Berglind Ragnarsdóttir og Frakkur frá Laugavöllum

Kea Mótaröðin                      :  Viðar Bragason og Þytur frá Narfastöðum

Húnverska mótaröðin           :  Jessie Huijbers og Hátíð frá Kommu

Uppsveitardeildin                  :  Þórarinn Ragnarsson og Hringur frá Gunnarsstöðum

KB Mótaröðin                       :  Siguroddur Pétursson og Steggur frá Hrísdal

Gluggar og Glerdeildin         : Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Fífill frá Feti

Meistaradeildin                      :  Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey

KS deildin                              :  Artemisa Bertus og Korgur frá Ingólfshvoli

 

Hvetjum alla til að taka kvöldið frá og koma í Samskipahöllina til að sjá alla helstu sigurvegara í mótaröðum landsins keppa um titilinn Meistari Meistaranna.   Húsið opnar kl. 17:30 og í boði verða léttar veitingar á mjög góðu verði að hætti Sprettara. Aðgangseyrir er kr. 1000 pr. mann

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link