Hestamannafélagið Geysir Folaldasýning Geysis

  • 12. mars 2026
  • Tilkynning

Folaldasýning Geysis tókst gríðarlega vel síðast og vakti mikla lukku ræktenda og höfum við því ákveðið að endurtaka leikinn!

Sýningin verður haldin sunnudaginn 15. Mars í Skeiðvangi á Hvolsvelli.

Sýningin byrjar kl 13:00 en eigendur folalda eru beðnir að mæta um 12:00.

Dæmt verður í flokki hestfolalda og merfolalda og verða einnig veitt verðlaun fyrir efnilegasta folaldið að mati áhorfenda.

Folaldasýningin er opin öllum og fer skráning fram á hmfgeysir@gmail.com.

Við skráningu þarf að koma fram nafn folalds, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi. Skráningargjald er 2500 krónur, millifært á reikningsnúmer 0308-13-300607 og kt.570169-4089.

Senda þarf kvittun á hmfgeysir@gmail.com með nafni folalds sem skýringu.

Skráningu lýkur föstudaginn 13. Mars

Vonumst til að sjá sem flesta!

Skemmtinefnd Geysis

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar