Álfur og Óskar kveðja Ísland
Álfur frá Selfossi kvaddi Ísland í dag en hann hélt út til eiganda síns Christinu Lund í morgun, en Cristina er búsett í Noregi.
Sögu Álfs þekkja flestir en hann er fæddur 2002 og er undan Orra frá Þúfu og Álfadís frá Selfossi. Hæstan dóm hlaut Álfur á Landsmóti 2006, þá 8,46 í aðaleinkunn og á Landsmóti 2011 hlaut hann fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Álfur hlaut Sleipnisbikarinn nú í ár á Landsmótinu. Hann hefur nú þegar sett sitt mark á ræktun hrossa á Íslandi en hægt er að sjá víðsvegar hross með rauðan haus og rauða lend.
Ekki nóg með það að Álfur sé farin til Noregs en með honum í för var Óskar frá Blesastöðum 1A en Nils Christian Larsen mun taka við þjálfun hestisns með keppnisþátttöku að markmiði. Óskar hefur heillað á keppnisbrautinni í ár undir stjórn Artemisiu Bertus. Þau sigruðu m.a. fjórgang Meistaradeildar, urðu sjöttu í töltkeppni Landsmótsins og í 6. sæti á Íslandsmótinu. Hann er einn þriggja hrossa sem hlotið hefur einkunnina 10 fyrir hægt tölt í kynbótadómi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH