Gústaf Ásgeir og Naskur frá Búlandi efstir í T2 ungmenna
Gústaf Ásgeir Hinriksson og Naskur frá Búlandi eru efstir eftir seinni umferð slaktaumatölts ungmenna, með einkunnina 7,87. Í öðru sæti urðu Skúli Þór Jóhannsson og Glanni frá Hvammi III með 7,03 og í því þriðja urðu Agnes Hekla Árnadóttir og Rós frá Geirmundarstöðum með 6,90.
Mót: IS2013GUL088 – Gullmótið Dags.:
Félag: Gullmótið
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Naskur frá Búlandi 7,87
2 Skúli Þór Jóhannsson / Glanni frá Hvammi III 7,03
3 Agnes Hekla Árnadóttir / Rós frá Geirmundarstöðum 6,90
4 Rakel Natalie Kristinsdóttir / Þrenna frá Hofi I 6,47
5 Sarah Höegh / Stund frá Auðsholtshjáleigu 6,33
6 Birta Ingadóttir / Pendúll frá Sperðli 6,10
7 Andri Ingason / Máttur frá Austurkoti 6,07