Barbara og Loftur sigurvegarar
Barbara Wenzl og Loftur frá Kálfsstöðum sigurvegarar í gæðingalist Myndir: Freydís Bergs
Barbara Wenzl og Loftur frá Kálfsstöðum áttu bestu sýningu kvöldsins með 7,50 í einkunn. Rétt á eftir er liðsfélagi hennar Mette Mannseth á Töfra frá Þúfum með 7,47 í einkunn. Þær kepptu báðar fyrir lið Þúfna sem var stigahæsta lið kvöldsins.
Vera Schneiderchen varð í þriðja sæti á Feyki frá Selfossi en þau unnu fjórganginn fyrr í vetur. Vera er efst í einstaklingskeppninni með 30 stig en hún hefur verið á toppnum allt frá fyrstu grein. Mette Mannseth hefur tyllt sér í annað sætið með 25 stig og er Þórarinn Eymundsson í þriðja með 21 stig.
Lið Hrímnis/Hestkletts er í efsta sæti í liðakeppninni með 222.5 stig. Í öðru sæti er Hofstorfan/550 með 205 stig og í þriðja Þúfur með 196,5 stig.
Næsta keppniskvöld er 12. apríl en þá er skeiðmót deildarinnar og verður keppt í gæðingaskeiði og 150 m. skeiði.
Niðurstöður – gæðingalist
Barbara Wenzl Loftur frá Kálfsstöðum Þúfur 7,50
Mette Mannseth Töfri frá Þúfum Þúfur 7,47
Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi Hrímnir/ Hestklettur 7,43
Þórey Þula Helgadóttir Kjalar frá Hvammi I Hofstorfan/550 7,30
Uppboðssæti – Lea Christine Busch Pálmi frá Þúfum 7,27
Herdís Björg Jóhannsdóttir Svörður frá Vöðlum Uppsteypa 7,07
Freyja Amble Gísladóttir Grandi frá Syðri-Gegnishólum Íbishóll 7,03
Þórgunnur Þórarinsdóttir Fær frá Prestsbæ Hrímnir/ Hestklettur 7,00
Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Þytur frá Stykkishólmi Exar 6,67
Kristófer Darri Sigurðsson Konsert frá Frostastöðum II Hofstorfan/550 6,63
Julian Veith Hátíð frá Ísalæk Storm Rider 6,53
Þorsteinn Björnsson Ugla frá Hólum Uppsteypa 6,43
Erlingur Ingvarsson Dimmalimm frá Hrísaskógum Lífland 6,40
Herjólfur Hrafn Stefánsson Yllir frá Reykjavöllum Bústólpi 6,20
Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey Exar 6,13
Lilja Dögg Ágústsdóttir Döggin frá Eystra-Fróðholti Lífland 6,07
Ívar Örn Guðjónsson Dofri frá Sauðárkróki Storm Rider 5,80
Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu Bústólpi 5,63
Sigurður Heiðar Birgisson Jósteinn frá Íbishóli Íbishóll 5,50
Barbara og Loftur sigurvegarar
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“