Undirbúningi fyrir HM miðar vel
Undirbúningi fyrir Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Rieden í Þýskalandi á næsta ári miðar vel og verða vellir og svæðið prófað með mótahaldi í sumar.
Ungmennamótið FEIF Youth Cup mun fara fram á svæðinu í júlí og fleiri mót eru áætluð þar sem vellir verða nýttir og prófaðir. Telji mótshaldarar að betrumbæta þurfi velli eða annað gefst tími til þess í framhaldinu. Carsten Eckert, framkvæmdaaðili mótsins, segist stefna að góðu móti, en hann hefur reynslu af rekstri HM, m.a. frá Berlín.
Á svæðinu er mikil og góð aðstaða, gerði, hesthús og reiðhallir og nýr hringvöllur hefur verið gerður á svæðinu. Carsten segir eitt af markmiðum mótshaldara vera að bjóða góð tjaldstæði og höfða sérstaklega til ungs fólk sem hefur kannski minna á milli handanna, en langar að koma, og þá sé líka verið að skoða möguleika á ódýrari stúkum fyrir hluta gesta, án þaks, en ekkert er þó frágengið í þeim efnum. Hefðbundar stúkur, VIP stúkur og annað sem fólk þekkir frá fyrri mótum verður að sjálfsögðu líka í boði.
Heimsmeistaramót hefur áður farið fram í Rieden, árið 1999, en Rieden er í suðaustanverðu Þýskalandi. Tæplega tveggja tíma akstur er frá Munchen á svæðið, auk þess sem ferðast má þangað í gegnum fleiri flugvelli í Þýskalandi og víðar. Eitt hótel er á mótssvæðinu, en fjölda þorpa er að finna í nágrenninu sem bjóða upp á gistingu í fögru umhverfi Bæjaralands.
Mynd og texti: Hulda G. Geirsdóttir
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar