Top Reiter/Sumarliðabær sigra liðakeppni Meistaradeildar Líflands

  • 27. mars 2026
  • Fréttir

Top Reiter/Sumarliðabær er sigurvegari í liðakeppni Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum árið 2026. Liðmenn þess eru Teitur Árnason liðsstjóri, Árni Björn Pálsson, Eyrún Ýr Pálsdóttir, Guðmunda Ellen Sigurðardóttir og Konráð Valur Sveinsson. Hlutu þau 292 stig alls og unnu þau liðaskjöldinn í alls fjórum greinum það er Gæðingalist, Gæðingaskeiði, 150 metra skeiði og Flugskeiði.

Frábær árangur hjá þeim en lengi framan af vetri var það lið Hjarðartún sem leiddi í stigakeppninni og áttu þau einnig frábært keppnistímabil og unnu liðaskjöldinn í þremur greinum. Fjórgangi, slaktaumatölti og fimmgangi. Hrepptu með því alls 277,5 stig í heildina. Í þriðja sæti varð svo lið IB bíla með 212,5 stig.

Hér fyrir neðan má sjá heildarstig allra sex liðanna sem þátt tóku í vetur.

V1 T2 F1 GL PP1 150m Skeið T1 Flugskeið Samtals
Top Reiter/Sumarliðabær 32.5 29 24.5 40 46 46 23 51 292
Hjarðartún 38 44 44.5 35.5 23.5 32 30 30 277.5
IB bílar 13.5 26 36 26.5 23.5 28.5 31.5 27 212.5
Hrímnir / Hest.is 29.5 22 32.5 25 20 12.5 43 25 209.5
Hestvit / Árbakki 33.5 18 17.5 19 29 27 28 27 199
Ganghestar / Margrétarhof 24 32 15 25 29 25 15.5 11 176.5

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link