Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum „Stefni alltaf á hámarksárangur“

  • 29. mars 2026
  • Sjónvarp Fréttir
Viðtal við Árni Björn Pálsson að sigri loknum í Meistaradeild Líflands

Árni Björn Pálsson skrifaði enn einn kaflann í sögubækurnar um helgina þegar hann tryggði sér sigur í einstaklingskeppni Meistaradeildar Líflands í áttunda sinn. Hann var krýndur sigurvegari eftir ákaflega spennandi úrslitakvöld í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli þar sem keppt var í tölti og flugskeiði.

Í samtali við Huldu Geirsdóttur á EiðfaxaTV eftir verðlaunaafhendinguna kvaðst Árni Björn vera mjög sáttur, þótt hann hafi farið inn í veturinn með ákveðna auðmýkt gagnvart verkefninu.

Nýir hestar og nýjar áskoranir

Aðspurður um hvort hann hafi átt von á sigrinum í upphafi vetrar sagði Árni Björn: „Já og nei. Ég er að koma með dálítið mikið af nýjum hestum og var ekkert beint með stefnuna á þetta, þó maður stefni alltaf á hámarksárangur, stundum tekst þetta.“

Þegar talið barst að þróun Meistaradeildarinnar í framtíðinni, nefndi Árni að hann væri til í að sjá meiri fjölbreytni í staðsetningum.
„Ég væri alveg til í að dreifa þessu aðeins, fara með einhverjar greinar til Reykjavíkur. Mig langar að prófa að ríða í Sörla út af aðstöðunni þar; upphitunaraðstaðan inni og glæsilegt hús. Það eru fullt af möguleikum sem hægt er að gera með deildina,“ sagði Árni og bætti við að hann væri einnig opinn fyrir því að sjá Smalann snúa aftur á dagskrána.

Horfir fram á veginn

Þótt sigurinn í Meistaradeildinni sé stór áfangi, þá er stutt í næstu verkefni. „Maður tekur þetta í skrefum. Það eru skammtímamarkmið og langtímamarkmið, og þetta lítur bara vel út fyrir vorið og sumarið.“

Að lokum var hann spurður hvernig hann ætlaði að fagna áttunda titlinum. Árni viðurkenndi að hann mætti vera duglegri að staldra við og njóta augnabliksins.
„Ég þarf að læra það betur. Hef ekki tekið mér tíma í að staldra við og átta mig á því er að gerast. Maður er alltaf svo upptekinn af því að halda áfram og gerir því bara eitthvað venjulegt.“ sagði hann léttur í bragði að lokum.

Viðtalið við Árna Björn í heild sinni má horfa á í spilaranum hér að neðan

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link