Þúsund þakkir fyrir gleði og skemmtun!
Folatollur undir Fenri frá Finnastöðum var boðinn upp til styktar SKB og fór hann á 750.000 kr. Ljósmyndir: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Hin árlega Stóðhestaveisla Eiðfaxa fór fram í gærkvöldi, laugardagskvöldið 28.mars, í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli og þökkum við staðarhöldurum kærlega fyrir frábært samstarf. Aðalstyrktaraðili viðburðarins í ár var Coca Cola og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn.
Fjöldinn allur af framúrskarandi hrossum kom fram á sýningunni sem vöktu mikla hrifningu. Við færum knöpum, ræktendum og eigendum þessara hrossa okkar bestu þakkir fyrir velvildina, en án þeirra óeigingjarna framlags hefði sýningin aldrei orðið að veruleika. Knaparnir voru á aldrinum tíu til áttatíu og þriggja ára og stóðu sig frábærlega, þrátt fyrir að úti fyrir væri brjálað veður og því aðstæður til upphitunar ekki upp á sitt besta.
Samstaða og gleði
Við viljum einnig þakka þeim fjölmörgu sem lögðu á sig mikla vinnu við undirbúning og framkvæmd sýningarinnar á staðnum. Áhorfendum sem troðfylltu HorseDay höllina og sköpuðu magnaða stemningu og gleði þökkum við kærlega fyrir komuna. Ekki má svo gleyma þeim þúsundum áhorfenda víðsvegar um heiminn sem fylgdust með veislunni í beinu streymi á EiðfaxaTV.

Guðbrandur Reynisson tekur við viðurkenningu fyrir Aðal frá Nýjabæ sem var heiðurshestur sýningarinnar
Styrktarmálefni ársins: Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
Sú fallega hefð hefur skapast að ágóði af söfnun Stóðhestaveislunnar rennur óskiptur til góðgerðarmála. Stóðhestaveislan í ár var engin undantekning, en að þessu sinni var hún tileinkuð Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna (SKB). Félagið sinnir ómetanlegu starfi við að styðja við fjölskyldur barna sem greinast með krabbamein og er stuðningur hestafólks og fyrirtækja í greininni því afar dýrmætur.
Stuðningurinn að þessu sinni var hreint ótrúlegur og sýnir enn og aftur hve þétt hestasamfélagið stendur saman þegar kemur að mikilvægum málefnum. Þótt lokatölur liggi ekki fyrir er ljóst að söfnunin skiptir milljónum króna.

Daníel Jónsson og Dalvar frá Efsta-Seli þakka fyrir sig.
Athugið: Söfnuninni lýkur formlega þann 1. maí. Áfram verður hægt að kaupa hrappdrættismiða og gefa frjáls framlög með því að hafa samband við eidfaxi@eidfaxi.is en happdrættið verður auglýst nánar síðast á vefnum.
Þakkir til samstarfsaðila
Okkur á Eiðfaxa er efst í huga þakklæti til allra þeirra sem gáfu vinninga og folatolla í happdrættið, gáfu folatolla í uppboðið og þeirra sem keyptu þá. Einnig þökkum við kærlega fyrir öll frjálsu framlögin sem bárust á meðan sýningunni stóð.
Sérstakar þakkir fá:
- Gústaf Ásgeir Hinriksson, sýningarstjóri, sem á heiðurinn af glæsilegri dagskrá, skipulagi atriða og mikilli vinnu við að láta allt ganga upp.
- Knapar sem voru hetjur kvöldsins við erfiðar upphitunaraðstæður
- Þulirnir Hulda Geirsdóttir og Hjörvar Ágústsson fyrir stemingu, stjórn á samkomunni og kynningu á hrossum.
- Eysteinn Leifsson fyrir þulastörf og uppboðsstjórnun
- Óli Pétur og félagar sem stóðu vaktina í hurðinni af sinni alkunnu snilld.
- Björgvin í Prentmet fyrir sitt mikilvæga framlag.
- Rangárþing ytra fyrir lánið á viðbótarstólum.
- Straumi fyrir þeirra framlag
- Dj Áki Pain sem hélt uppi frábærri stemningu allt kvöldið.
- Staðarhaldarar á Ingólfshvoli
- Guðbrandi Stíg Ágústssyni og Kormáki Ara Guðbrandssyni fyrir að standa vaktina í hurðinni.
Allir þessir aðilar, og fjölmargir aðrir, gáfu vinnu sína til þess að styðja við söfnunina og gera kvöldið að þeirri veislu sem raun bar vitni.
Takk fyrir okkur og sjáumst á Stóðhestaveislu að ári liðnu!

Viktoría Huld og Þinur frá Enni sýna spænska sporið. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Þúsund þakkir fyrir gleði og skemmtun!
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Barist til þrautar í Meistaradeild KS