Allra sterkustu um næstu helgi!
Laugardaginn 4.apríl næstkomandi fer fram mikilvægasti fjáröflunarviðburður íslenska landsliðsins í hestaíþróttum Allra sterkustu. Viðburðurinn fer fram í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Miðasala fer fram á vef LH.
Í tilkyninngu frá LH segir að dagskráin verði skemmtileg þar sem landsliðsknapa munu keppa til úrslita í tölti, fjórgangi og fimmgangi. Þá verða stóðhestar og hryssur sýndar og U-21 árs landsliðið verður með glæsilega skrautreið.
Stóðhestaveltan er á sínum stað þar sem fólk getur nælt sér í folatolla undir frábæra stóðhesta og má kynna sér þá nánar á vef LH með því að smella hér. Þá verður efnt til glæsilegs happadrættis.
Ekki láta þitt eftir liggja, komdu og njóttu gleðinnar og hjálpaðu liðinu að komast einu skrefi nær Gullinu á NM í Svíþjóð!
Allra sterkustu um næstu helgi!
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar