Dymbilvikusýning Spretts

  • 31. mars 2026
  • Tilkynning
1.apríl í Samskipahöllinni í Kópavogi

Hin árlega sýning hestamannafélagsins Spretts, Dymbilvikusýningin, fer fram 1. apríl nk. í Samskipahöllinni.

Ljúffengt lambalæri og með því verður á boðstólum fyrir kr. 3500 frá kl. 18:00
Sprettskórinn syngur í veislusalnum frá 19:30
Sýning sett kl 20:00

Sprettskórinn mun hita félagsmenn upp fyrir sýninguna, ungir Sprettarar mæta á svæðið ásamt Töltgrúppu Spretts, kynbótahrossum, ræktunarbúum, íþróttafólk Spretts, gestum frá öðrum félögum og fleira.

Ef Sprettarar hafa áhuga á að koma fram með hesta frá sér þá vinsamlegast hafið samband á dymbilvikusyning(hja)sprettur.is

Miðaverð inn á sýninguna er kr. 2000, selt við innganginn.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link