Skráning hafin í KB-mótaröðina
Skráning er nú hafin í KB mótaröðina, sem hefst laugardaginn 4. febrúar nk. með keppni í fjórgang. Keppni verður háð milli einstaklinga og liða.
Liðakeppni (lágmark 3 í liði – opin keppni)
Einstaklingskeppni (opin keppni)
Flokkar: Barna-, unglinga-, ungmenna-, opinn flokkur, 1.flokkur, 2.flokkur
Skráningar þurfa að berast fyrir kl. 22:00 fimmtudaginn 2. feb. á netföngin: [email protected], [email protected] eða í s. 691-0280 eða 699-6116. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisflokkur, upp á hvor höndina er riðið, nafn knapa, is númer hests. Auk þess þarf að koma fram fyrir hvaða lið keppt er ef keppt er fyrir lið.
Skráningargjald er 2000.kr fyrir opinn flokk, 1flokk og 2.flokk (2.fl. 20 keppnir eða minna) og ungmenni. (1.000 kr.fyrir annan hest) 1000 kr.fyrir börn og unglinga. Greiðist inn á reikning 0354-26-001688 kt.481079-0399 í síðasta lagi fimmtudaginn 2. feb. annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að borga.
Hvert lið þarf að hafa sitt sérkenni. Sérstök heiðursverðlaun eru veitt því liði sem þykir hafa sýnt skemmtilegustu liðsheildina.
Frítt inn í höllina og veitingar seldar á staðnum
Stíupláss til leigu ([email protected] eða s.895-1748)
-
4. febrúar – fjórgangur
-
25. febrúar – tölt
-
18. mars – fimmgangur/T2/T7 f.börn
Öll mótin hefjast kl. 12 í reiðhöllinni í Borgarnesi. Mótaröðin og er haldin á vegum hestamannafélaganna Faxa og Skugga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH