Framundan í vikunni
Það er nóg um að vera í hestamennskunni og er þessi vika engin undantekning. Eiðfaxi ætlar að setja hér niður helstu viðburði vikunnar. Ef þú manst eftir einhverjum fleirum máttu endilega benda okkur á það.
Þriðjudagur 7. apríl
- Síðasta mótið í Suðurlandsdeild Eques. Keppt verður í tölti og skeiði í gegnum höllina. Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
Fimmtudagur 9. apríl
- Blue Lagoon mótaröðin heldur áfram í Samskipahöllinni en keppt verður í slaktaumatöltið Mótið er sýnt í beinni í opinni dagskrá á EiðfaxaTV.
- Komið er að töltkeppni 1. deildarinnar og er mótið sýnt í beinni á EiðfaxaTV. Þetta er næst síðasta mótið í 1. deild Hringdu en á lokamótinu munu við draga út í áskriftarleik Ástundar og Eiðfaxa.
Föstudagur 10. apríl
- Tölt í Samskipadeild, áhugamannadeild Spretts. Mótið er sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
- Lokamótið í Uppsveitadeild Flúðasveppa en þá er keppt í tölti og skeiði í gegnum húsið.
Laugardagur 11. apríl
- Meistaradeild Líflands og æskunnar en keppt verður í tölti T1 og gæðingaskeiði. Mótið er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á EiðfaxaTV.
- Áhugamannadeild Norðurlands en keppt verður í tölti í reiðhöllinni á Akureyri. Mótið er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á EiðfaxaTV.
- Keppt í tölti í Mótaröð Glaðs.
Sunnudagur 12. apríl
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar