Skráning í KEA-mótaröðina
Skráning er hafin fyrir Fjórgang KEA mótaraðarinnar sem fram fer fimmtudaginn 9. febrúar og er skráning á [email protected].
Mótaröðin var sterk í fyrra en allt bendir til þess að hún verði enn sterkari í ár!
Skráningargjaldið er 2.500 kr. fyrir hvern hest, og það þarf að leggja inn á: reikn 0302-26-15841 kt: 430269-6749 (a.t.h. þetta er ekki sami reikn. og vanalega er notaður). Skráning telst ógild þar til greiðsla hefur borist.
Skráningu lýkur kl. 19:00 mánudaginn 6. febrúar. Ráslistar verða birtir þriðjudaginn 7. febrúar.
Taka þarf fram nafn knapa og kennitölu og í hvaða grein er verið að skrá í, nafn hests og IS-númer. Án þessara upplýsinga er skráningin ógild.
Mótið hefst kl. 19:00, fimmtudaginn 9. Knapafundur hefst klukkutíma fyrir upphaf móts.
Mótanefnd Léttis
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH