Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Agnar Þór og Kvistur á flugaskeiði Myndir: Freydís Bergsdóttir
Það var spennandi flugskeiðið í gegnum Svaðastaðahöllina í Meistaradeild KS í kvöld. Það leit lengi út að Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk ætluðu að landa sigri með tímann 4,62 sek. Þeir Agnar Þór Magnússon og Kvistur frá Kommu settu þá í fluggírinn í seinni sprettinum og fóru í gegn á 4,52 sek. Nýtt hallarmet en þeir Konráð og Kastor bættu hallarmetið í fyrra þegar þeir fóru í gegn á 4,61 sek.
Í þriðja sæti varð Þórarinn Eymundsson á Lukku frá Breiðholti, Gbr. á tímanum 4,78 sek. Dýrmæt stig fyrir Þórarinn sem var líklega að landa sigri í einstaklingskeppninni með þessum árangri. Mette Mannseth og Vera Evi Schneiderchen voru á undan honum fyrir flugskeiðið en náðu hvorugar í stig í greininni.
Lið Íbishóls var stigahæst í skeiðinu en þau Agnar, Konráð og Freyja Amble Gísladóttir kepptu fyrir liðið.
Hér fyrir neðan eru niðurstöðurnar úr flugskeiðinu
Flugskeið
Sæti Knapi Hross Tími
1 Agnar Þór Magnússon Kvistur frá Kommu 4,52
2 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 4,62
3 Þórarinn Eymundsson Lukka frá Breiðholti, Gbr. 4,78
4 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Spes frá Stóra-Hofi 4,90
5 Matthías Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi 4,95
6 Freyja Amble Gísladóttir Dalvík frá Dalvík 4,98
7 Kristófer Darri Sigurðsson Egla frá Hólum 4,98
8-9 Bjarni Jónasson Eðalsteinn frá Litlu-Brekku 4,99
8-9 Þórey Þula Helgadóttir Hrina frá Hólum 4,99
10 Daníel Gunnarsson Smári frá Sauðanesi 5,02
11 Kristján Árni Birgisson Sviðrir frá Reykjavík 5,09
12 Lilja Dögg Ágústsdóttir Stanley frá Hlemmiskeiði 3 5,11
13 Herdís Björg Jóhannsdóttir Gosi frá Staðartungu 5,12
14 Sigrún Rós Helgadóttir Gjöf frá Hofi á Höfðaströnd 5,14
15 Herjólfur Hrafn Stefánsson Tvistur frá Garðshorni 5,15
16 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá 5,17
17 Elvar Einarsson Gáski frá Varmalandi 5,21
18 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu 5,21
19 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum 5,25
20 Björg Ingólfsdóttir Grímnir frá Þóroddsstöðum 5,27
21 Unnur Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju 5,37
22 Atli Freyr Maríönnuson Elmar frá Staðarhofi 5,38
23 Ívar Örn Guðjónsson Buska frá Sauðárkróki 5,46
24 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum 5,56
25 Þorsteinn Björnsson Fála frá Hólum 5,60
26 Vera Evi Schneiderchen Sturla frá Bræðratungu 5,68
27 Emma Thorlacius Númi frá Hólum 6,01
28 Elvar Logi Friðriksson Kuldi frá Skipaskaga 6,19
29-30 Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi 0,00
29-30 Sigurður Heiðar Birgisson Tinna frá Ríp 0,00
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu