Fákar og fjör á Akureyri
Það styttist í eina af hápunktum vorsins hjá hestamönnum norðan heiða, en laugardaginn 25. apríl næstkomandi blása Léttismenn til sinnar árlegu sýningar, Fákar og fjör.
Eins og Norðanmönnum er einum lagið verður ekkert til sparað. Áhorfendur mega eiga von á fjölbreyttri og kraftmikilli sýningu þar sem fram koma:
- Glæsilegir graðhestar
- Úrvals klárhryssur og klárhross
- Öflug alhliðahross
- Og að sjálfsögðu nóg af glensi og gamni!
Matur og drykkur í Skeifunni
Húsið opnar klukkan 17:30 og er kjörið fyrir gesti að mæta snemma, ná góðum sætum og gæða sér á kvöldverði að hætti húsins uppi í Skeifunni áður en sýningin rúllar af stað.
Dagskrá kvöldsins:
17:30: Húsið opnar og matarsala hefst.
19:30: Sýningin Fákar og fjör hefst af krafti.
23:00: Skellt í lás í reiðhöllinni en opnað fyrir dansleik þar sem fjörið heldur áfram fram eftir nóttu.
Hestafólk er hvatt til að fjölmenna, njóta gæðahrossa og fagna vorinu saman á Akureyri!
Fákar og fjör á Akureyri
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Gífurlega spennandi lokakvöld Meistaradeildar Líflands
Lokamótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar
Knapaviðtöl á lokamóti Meistaradeildar KS