„Markmiðið er alltaf að berjast á toppnum“
Jakob ríður Nökkva sigurhring að loknum sigri í B-flokki á LM2016. Ljósmynd: Eiðfaxi
Keppni í B-flokki gæðinga á Landsmóti er einn af hápunktum mótsins og þar reynir á taktfestu, rými og glæsileika gæðingsins. Á Landsmóti árið 2016 var hart barist um sigur og voru A-úrslitin ákaflega jöfn og spennandi. Við skulum ferðast tíu ár aftur í tímann og að þessu sinni rifja upp keppni í B-flokki.
Frábærir klárhestar
Að lokinni sérstakri forkeppni var það Loki frá Selfossi, sem sýndur var af Árna Birni Pálssyni sem hæsta einkunn hlaut 9,04, Loki var þarna ríkjandi sigurvegari flokksins frá Landsmóti árið 2014. Í öðru sæti varð Katla frá Ketilsstöðum og Bergur Jónsson með 8,93 og skammt undan var svo Nökkvi frá Syðra-Skörðugili sýndur af Jakobi Svavari með 8,90.
Í milliriðlum hélt Loki áfram forystunni með 8,85 en Nökkvi var heldur farinn að draga á hann og var annar með 8,84. Í þriðja sætinu varð svo Frami frá Ketilsstöðum sýndur er Elinu Holst með 8,75, en hann átti eftir að sigra þennan sama flokk tveimur árum seinna á Landsmóti 2018.
Þegar í A-úrslit var komið er óhætt að segja að þeir Nökkvi og Loki hafi háð einvígi sem endaði með því að Nökkvi og Jakob unnu með einkunnina 9,21. Loki og Árni Björn hlutu 9,18. Í þriðja sætinu varð svo Spölur frá Njarðvík og Ásmundur Ernir með 8,99 í einkunn.

Sigri í B-flokki fagnað
Ætlar sér stóra hluti í ár
Þegar Jakob lítur til baka til mótsins á Hólum 2016 er honum staðurinn ofarlega í huga. „Fyrir mér er Landsmótið 2016 og Hólastaður yfir höfuð sveipaður einhverjum ljóma og alltaf gaman að koma þarna. Eins og á öðrum svæðum fylgja þeim ákveðnir kostir og gallar. Þetta mót var aðeins erfitt mót út af veðri, sérstaklega kulda og gerði þetta svona aðeins minna skemmtilegt og mikil keyrsla fram og til baka.“
Sigurvegarinn Nökkvi frá Syðra-Skörðugili var gæðingur í augum Jakobs. „Nökkvi er frábær gæðingur, gangviss, rúmur og viljugur. Hlaupaglaður,“ segir Jakob. Hann nefnir að hesturinn hafi þess til viðbótar verið stór og mikill glæsigripur, en hann hafi þurft að hafa ákveðna hluti í huga: „Hann átti erfiðast með sig á hægu tölti en á brokki og greiðu tölti þurfti maður ekki að hafa mikið fyrir honum og þar var hann frábær.“
Jakob segist ætla sér stóra hluti á mótinu sem framundan er í sumar. „Já, ég ætla mér stóra hluti á öllum vígstöðum og er með nokkur markmið sem eru háleit. Ef við beinum sjónum okkar að B-flokki að þá er ég með frábæran hest em mig langar að gera vel með, Kór frá Skálakoti. Markmiðið er alltaf að berjast á toppnum í öllum greinum sem maður tekur þátt í en auðvitað er fleiri með það markmið.“
Umgjörðin á Hólum er einstök en Jakob vonar að skipulagið haldi vel utan um mannskap og hross. „Mér finnst gaman að koma á Hóla og staðurinn er æðislegur. Með þessu sniði sem mótið á að vera núna veit ég ekki alveg með allan þennan hrossafjölda – maður veit ekki hvort maður fái hesthúspláss fyrir allt eða ekki. Aðalatriðið er að koma hrossunum vel fyrir svo þetta verði ekki endalaus keyrsla fram og til baka, því þá fer sjarminn af þessu.“
Við skulum rifja augnablikið upp og heyra viðtal við Jakob Svavar og sjá upprifjun sem tekið sem úr umfjöllunarþætti um Landsmót 2016 sem sýndur var á RÚV og er einnig að finna í Gullkistunni á EiðfaxaTV.
Sigurvegarar í B-flokki gæðinga á Landsmóti
2024 – Safír frá Mosfellsbæ 9,02, knapi Sigurður Vignir Matthíasson
2022 – Ljósvaki frá Valstrýtu 9,21, knapi Árni Björn Pálsson
2018 – Frami frá Ketilsstöðum 9,14, knapi Elin Holst
2016 – Nökkvi frá Syðra-Skörðugili 9,21, knapi Jakob Svavar Sigurðsson
2014 – Loki frá Selfossi 9,39, knapi Sigurður Sigurðarson
2012 – Glóðafeykir frá Halakoti 9,00, knapi Einar Öder Magnússon
2011 – Kjarnorka frá Kálfholti 9,19, knapi Sigurður Sigurðsson
2008 – Röðull frá Kálfholti 9,15, knapi Ísleifur Jónasson
2006 – Hlýr frá Vatnsleysu 8,95, knapi Snorri Dal
2004 – Rökkvi frá Hárlaugsstöðum, knapi Þorvaldur Árni Þorvaldsson
2002 – Kjarkur frá Egilsstöðum 9,03, knapi Sigurður V. Matthíasson
2000 – Markús frá Langholtsparti 9,27, knapi Sigurbjörn Bárðarson
1998 – Kringla frá Kringlumýri 8,96, knapi Sigurður Sigurðarson
1994 – Orri frá Þúfu 8,91, knapi Gunnar Arnarson
1990 – Dimma frá Gunnarsholti 8,92, knapi Rúna Einarsdóttir
1986 – Kristall frá Kolkuósi 8,69, knapi Gylfi Gunnarsson
1982 – Hrímnir frá Hrafnagili 8,86, knapi Björn Sveinsson
1978 – Hlynur frá Akureyri 9,16, knapi Eyjólfur Ísólfsson
1974 – Gammur frá Hofsstöðum 9,12, knapi Magnús Jóhannsson
1970 – Gráni frá Auðsstöðum 8,20, knapi
„Markmiðið er alltaf að berjast á toppnum“
150 plássum bætt við
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
„Höfum þróast með því sem er að gerast í heiminum“
Glæsilegu WR Íþróttamóti Sleipnis lokið