Meistaradeild Líflands & æskunnar Lokamótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar

  • 21. apríl 2026
  • Fréttir

Lið Isi-Pack leiðir í heildarstigakeppni fyrir lokamótið

Úrslitin ráðast í gæðingaskeiði

Lokamótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar fer fram á félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks í Víðidalnum í Reykjavík á morgun, miðvikudaginn 22.apríl, og hefst keppni klukkan 18:00. Mótið er að sjálfsögðu sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Lið Isi-Pack á toppnum

Það kemur því í ljós að gæðingaskeiði loknu hvernig endanleg röð þeirra tíu keppnisliða sem taka þátt í deildinni í vetur verður. Alls er fimm greinum lokið; fjórgangi, fimmgangi, tölti, gæðingalist og slaktaumatölti. Að svo stöddu er það lið Isi-Pack sem hefur töluvert forskot í efsta sætinu með 388 stig, í öðru sæti er lið Hringdu/Toyota Selfossi með 289 stig og í því þriðja lið Vakurstaða með 270,5 stig.

 

# Lið Samtals
1 Isi-Pack 388
2 Hringdu/Toyota Selfossi 289
3 Vakurstaðir 270,5
4 Hrímnir 227
5 Top Reiter 264
6 Horseday 213,5
7 Mjósyndi 182
8 Stafholtshestar/Fellskot 166,5
9 Fornustekkar/Pula/Mykjunes 81
10 Búhagur 72

 

Knaparnir í deildinni hafa verið til mikils sóma í allan vetur, þar hafa sést frábærar sýningar og ljóst að ekki er langt þar til þessir knapar framtíðar fara að berjast við okkar allra bestu knapa um sigur á stórmótum.

 

Ráslisti í gæðingaskeiði
Nr. Knapi Hestur Lið
Gæðingaskeið PP1 Unglingaflokkur
1 Kristín María Kristjánsdóttir Alex frá Einiholti 2 Vakurstaðir
2 Íris Thelma Halldórsdóttir Kola frá Efri-Kvíhólma Fornustekkar/Pula/Mykjunes
3 Una Björt Valgarðsdóttir Gígja frá Sauðárkróki Búhagur
4 Svava Marý Þorsteinsdóttir Sæld frá Syðra-Langholti Stafholtshestar/Fellskotshestar
5 Loftur Breki Hauksson Sölvi frá Stuðlum Hringdu/Toyota Selfossi
6 Sigurður Ingvarsson Ísak frá Laugamýri Mjósyndi
7 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir Höfði frá Bakkakoti Top Reiter
8 Jórunn Edda Antonsdóttir Aríel frá Fitjum Isi-Pack
9 Ylva Sól Agnarsdóttir Fjóla frá Garðshorni á Þelamörk Hrímnir
10 Bertha Liv Bergstað Borgar Búi frá Árbæjarhjáleigu II Vakurstaðir
11 Viktor Leifsson Tryggur frá Selfossi Fornustekkar/Pula/Mykjunes
12 Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir Gletta frá Litla-Dunhaga II Búhagur
13 Arnór Darri Kristinsson Ófeig frá Syðra-Holti Stafholtshestar/Fellskotshestar
14 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Hildur frá Feti Hringdu/Toyota Selfossi
15 Bryndís Anna Gunnarsdóttir Von frá Ási 1 Mjósyndi
16 Apríl Björk Þórisdóttir Gnýr frá Gunnarsholti Top Reiter
17 Elimar Elvarsson Ása frá Kagaðarhóli Isi-Pack
19 Árný Sara Hinriksdóttir Foringi frá Laxárholti 2 Vakurstaðir
20 Ragnar Dagur Jóhannsson Urla frá Pulu Fornustekkar/Pula/Mykjunes
21 Emma Rún Sigurðardóttir Tinna frá Reykjadal Stafholtshestar/Fellskotshestar
22 Ísabella Helga Játvarðsdóttir Lávarður frá Ekru Hringdu/Toyota Selfossi
23 Gabríela Máney Gunnarsdóttir Tromma frá Laufhóli Mjósyndi
24 Álfheiður Þóra Ágústsdóttir Gammur frá Ósabakka 2 Top Reiter
25 Elsa Kristín Grétarsdóttir Spurning frá Sólvangi Isi-Pack
26 Hrefna Kristín Ómarsdóttir Hljómur frá Litlalandi Ásahreppi Horseday
27 Elísabet Benediktsdóttir Óðinn frá Silfurmýri Vakurstaðir
28 Bjarni Magnússon Brák frá Lækjarbrekku 2 Fornustekkar/Pula/Mykjunes
29 Fríða Hildur Steinarsdóttir Auðna frá Húsafelli 2 Stafholtshestar/Fellskotshestar
30 Linda Guðbjörg Friðriksdóttir Fjöður frá Gíslholti Hringdu/Toyota Selfossi
31 Sigríður Fjóla Aradóttir Kolfreyja frá Hvítárholti Mjósyndi
32 Hákon Þór Kristinsson Stanley frá Hlemmiskeiði 3 Top Reiter
33 Gabríel Liljendal Friðfinnsson Jökull frá Stóru-Ásgeirsá Isi-Pack
34 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þórfinnur frá Skáney Horseday
35 Kristín Rut Jónsdóttir Ása frá Fremri-Gufudal Hrímnir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link