„Hrannar er öðrum hestum fremri“
Sigur í A-flokki gæðinga á Landsmóti er einn eftirsóttasti titill sem hægt er að vinna á íslenskum hesti. Alla knapa dreymir um að ná þessum titli sem og öllum ræktendum að hestur þeirra standi efstur alhliða gæðinga á Landsmóti. Við skulum rifja upp keppni Alhliða gæðingaá Landsmóti á Hólum í Hjaltadal fyrir tíu árum í tilefni þess að Landsmót verður haldið þar í sumar.
Hrannar hélt forystu
Eins og jafnan á Landsmótum höfðu margir af öflugustu gæðingum landsins unnið sér þátttökurétt og áhorfendur fengu að njóta þess í ríkum mæli í gegnum forkeppni, milliriðla og úrslit.
Strax í sérstakri forkeppninni varð ljóst að keppnin yrði jöfn en þar tók forystu Hrannar frá Flugumýri II, sýndur af Eyrúnu Ýri Pálsdóttur, með 9,06 í einkunn. Fast á hæla þeirra fylgdu Arion frá Eystra-Fróðholti og Daníel Jónsson með 8,96, en í þriðja sætinu sátu þeir Örvar frá Gljúfri og Jón Óskar Jóhanneson með 8,83.
Spennan magnaðist í milliriðlum þar sem tveir efstu hestarnir héldu sínum hlut; Hrannar hlaut þar 9,04 og Arion fylgdi fast á eftir með 8,94. Í þriðja sætið skaut sér hins vegar Skýr frá Skálakoti, sýndur af Jakobi Svavari Sigurðssyni, með einkunnina 8,80.
Í úrslitunum sjálfum var boðið upp á veislu þar sem röð efstu þriggja hesta úr milliriðlum hélst óbreytt eftir magnaðar sýningar. Hrannar frá Flugumýri II stóð uppi sem sigurvegari með einkunnina 9,16. Arion varð annar með 9,04 og í þriðja sætinu hafnaði Skýr með 8,92.
Stemningin í úrslitum stendur upp úr
Til að endurupplifa stemninguna frá þessu magnaða laugardagskvöldi heyrðum við í sjálfum sigurvegaranum, Eyrúnu Ýri Pálsdóttur, en einnig er hægt að sjá þessa sögulegu úrslitakeppni úr umfjöllunarþætti RÚV inni í Gullkistunni á EiðfaxaTV.
Þegar Eyrún lítur til baka til Landsmótsins á Hólum 2016 eru það úrslitin og stemninginn í þeim sem standa uppúr. „Sigurinn í A-flokknum stendur að sjálfsögðu upp úr,“ segir Eyrún og það burt séð frá bikarnum sjálfum. „Það var ógleymanlegt að ríða úrslitin á laugardagskvöldinu og finna fyrir stuðningnum í brekkunni. Heyra brekkuna hrópa „áfram Eyrún!“ á meðan úrslitin voru riðin.“
Aðspurð um Hrannar sjálfan fer hún fögrum orðum um hann en játar að mesta vinnan hafi snúist um andlega þáttinn hjá henni sjálfri. „Ég er nú búin að segja það áður og segi það aftur að hann Hrannar er yfirburða hestur á svo marga vegu; hann er öðrum hestum fremri. Það sem ég þurfti helst að hafa í huga á þessum tíma var hreinlega að halda haus, láta stressið ekki fara með mig og njóta augnabliksins.“
Nú þegar áratugur er liðinn og mótið fer aftur fram á Hólum, liggur beint við að spyrja hvort áhorfendur megi eiga von á endurkomu – jafnvel með Hrannar sjálfan eða aðra sigurstranglegt gæðinga. Eyrún segir svo ekki vera með gamla meistarann en á aðra spennandi valkosti sérstaklega í B-flokki. „Nei, Hrannar er ekki á leiðinni norður,“ segir hún. „Ég er hins vegar með virkilega góða hesta í B-flokk sem geta verið í toppbaráttu ef allt gengur upp, hesta sem mig hlakkar mikið til að sýna.“
Hún dregur heldur ekki dul á að ákveðnar breytingar hafi átt sér stað í hestakostinum fyrir vorið sem breyttu stefnunni í A-flokki. „Leynir frá Garðshorni á Þelamörk, sá hestur sem margir reiknuðu með að ég væri að fara með í A-flokk, skipti um knapa í vor. Þannig að draumurinn um endurkomu og að sigra A-flokkinn aftur á Hólum er úr sögunni í bili. En ef nýi þjálfarinn hans Leynis sýnir honum þá natni og virðingu sem hann á skilið, þá erum við þar með líklegan sigurvegara í A-flokki. Vonandi ná þeir bara að stilla saman strengi sína og vinna.“ Þar vitnar Eyrún í það að Þorgeir Ólafsson sé nú orðinn knapi á Leyni.
Að lokum líst Eyrúnu vel á komandi mót en viðurkennir að stórum viðburðum fylgi talsverð fórn og umstang. „Mér líst vel á mótið og held að hestakosturinn verði frábær, allt frá barnaflokknum upp í gæðingaflokkana, og svo ræktunarstarfið sem er grasrótin og extra skemmtilegt að fylgjast með. Hólastaður er gífurlega fallegur staður og alltaf gott og gaman að koma og vera þar. Mér bæði hlakkar til að fara „heim að Hólum“ en jafnframt kvíðir mér smá fyrir því; það er mjög kostnaðarsamt að fara með mörg hross norður og mikil fyrirhöfn. En þrátt fyrir það er ég mjög spennt fyrir mótinu og hlakka til að sýna mig og sjá aðra.“
Sigurvegarar í A-flokki gæðinga á Landsmóti
2024 – Álfamær frá Prestsbæ 9,05, knapi Árni Björn Pálsson
2022 – Kolskeggur frá Kjarnholtum 9,01, knapi Sigurður Sigurðarson
2018 – Hafsteinn frá Vakurstöðum 9,09, knapi Teitur Árnason
2016 – Hrannar frá Flugumýri 9,16, knapi Eyrún Ýr Pálsdóttir
2014 – Spuni frá Vesturkoti 9,30, knapi Þórarinn Ragnarsson
2012 – Fróði frá Staðartungu 8,94, knapi Sigurður Sigurðarson
2011 – Ómur frá Kvistum 8,98, knapi Hinrik Bragason
2008 – Aris frá Akureyri 8,86, knapi Árni Björn Pálsson
2006 – Geisli frá Sælukoti 9,17, knapi Steingrímur Sigurðsson
2004 – Geisli frá Sælukoti, knapi Steingrímur Sigurðsson
2002 – Adam frá Ásmundarstöðum 8,96, knapi Logi Þ. Laxdal
2000 – Ormur frá Dallandi 9,22, knapi Atli Guðmundsson
1998 – Galsi frá Sauðárkróki 8,75, knapi Baldvin A. Guðlaugsson
1994 – Dalvar frá Hrappsstöðum 8,75, knapi Daníel Jónsson
1990 – Muni frá Ketilsstöðum 9,26, knapi Trausti Þór Guðmundsson
1986 – Júní frá Syðri-Gróf 8,60, knapi Einar Öder Magnússon
1982 – Eldjárn frá Hvassafelli 8,67, knapi Albert Jónsson
1978 – Skúmur frá Stórulág 8,94, knapi Sigfinnur Pálsson
1974 – Núpur frá Kirkjubæ 9,24, knapi Sigurfinnur Þorsteinsson
1970 – Blær frá Langholtskoti 8,78, knapi Hermann Sigurðsson
Sameiginlegur flokkur Gæðinga
1966 – Blær frá Langholtskoti 8,83, knapi Hermann Sigurðsson
1962 – Stjarni frá Oddsstöðum 8,65, knapi Bogi Eggertsson
1958 – Blesi (Árna-Blesi) frá Hofsstaðaseli, knapi Sveinn Guðmundsson
1954 – Stjarni frá Oddsstöðum, knapi Bogi Eggertsson
1950 – Stjarni frá Hólum, knapi Ingólfur Guðmundsson
Landsmót 2026 í beinni á EiðfaxaTV
Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.
„Hrannar er öðrum hestum fremri“
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
„Ósanngjarnt gagnvart dómurum“
Drífandi og Bella hæst dæmd á Romme