Heimsmeistarinn Prestur vakti athygli við breska þinghúsið

  • 4. maí 2026
  • Fréttir

Sturla Sigurjónsson, Prestur frá Borgarnesi og Sir Lindsay Hoyle. Ljósmynd: Embassy of Iceland in London

Íslenski gæðingurinn og fyrrum heimsmeistarinn Prestur frá Borgarnesi var í aðalhlutverki við breska þinghúsið í Westminster á dögunum. Tilefnið var sérstakur viðburður á vegum þverpólitísks hóps þingmanna (APPG) um málefni fólks með ofvirkni eða athyglisbrest, þar sem sjónum var beint að því hvernig hross geta nýst sem stuðningur við fólk með þess háttar greiningar.

Það var Jo Platt, þingmaður Verkamannaflokksins, sem stóð fyrir því að fá Prest í heimsókn. Meðal gesta var Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands í Bretlandi, auk Sir Lindsay Hoyle, forseta neðri málstofu breska þingsins.

Prestur er mörgum hestamönnum kunnur, en hann er sautján vetra gamall gæðingur frá Borgarnesi sem gerði garðinn frægan á heimsmeistaramótinu í Hollandi árið 2017. Þar vann hann til gullverðlauna í fimmgangi ungmenna ásamt þáverandi knapa sínum Mána Hilmarssyni. Líkt og lög gera ráð fyrir sneri Prestur ekki aftur heim til Íslands eftir mótið og hefur síðan þá verið staðsettur í Bretlandi.

Í dag er Presti lýst sem einstökum karakter; blíðum hesti með mikið innsæi og hæfileika til að tengjast börnum og fullorðnum með taugaójafnvægi. Hann hefur verið ötull við að gleðja fólk í sumarbúðum og á ýmsum viðburðum, og þykir með eindæmum góður sendiherra fyrir íslenska hestinn.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link