Mikil skráning á kynbótasýningar vorsins

  • 5. maí 2026
  • Fréttir

Flesta rætkendur dreymir um að koma hrossi á kynbótasýningu á Landsmóti

Mikill metnaður í ræktunarstarfinu á Íslandi

Í morgun var opnað fyrir skráningar á kynbótasýningar vorsins hér á landi. Fyrirhugaðar eru alls fjórtán sýningar á sex mismunandi stöðum á landinu. Fljótlega eftir að skráning opnaði varð ljóst að mikill áhugi er á meðal ræktenda landsins að koma sínum grip til dóms. Hefur þar sjálfsagt mest að segja Landsmót sem fram fer á Hólum í Hjaltadal og alla dreymir um að þeirra hross fái notið sín þar.

Alls er áætlað að hægt verði að sýna 1350 hross á þessum sýningum nú þegar þetta er ritað er búið að skrá alls 1145 hross og eru sjö sýningar orðnar fullskipaðar þar af eru fimm þeirra á Rangárbökkum við Hellu og tvær á Sörlastöðum í Hafnarfirði.

Verður þessi mikla skráning að teljast sem vísbending um mikinn metnað og áhuga íslenskra hrossaræktenda.

Sýnt verður beint frá öllum kynbótasýningum vorsins á EiðfaxaTV og hvetjum við hestaáhugafólk til þess að tryggja sér áskrift nú þegar og fylgjast með afrakstri ræktunarstarfsins.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link