Háskólinn á Hólum Ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra

  • 14. maí 2026
  • Tilkynning
Alþjóðleg ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra verður haldin á Hólum dagana 15.–16. maí.

Háskólinn á Hólum og Gló stuðningsfélag standa saman að alþjóðlegri ráðstefnu um dýrastudda nálgun í starfi með fólki, sem haldin verður á Hólum í Hjaltadal dagana 15.–16. maí 2026.

Ráðstefnan er ætluð öllu fagfólki og áhugafólki sem vill dýpka skilning sinn á því hvernig dýr geta stutt við vellíðan, þátttöku, nám og þroska í starfi með fólki. Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast nýjustu þekkingu, ólíkum sjónarhornum og reynslu þeirra sem hafa sérhæft sig á þessu sviði. Sérstök áhersla verður lögð á starf með hestum.

Meðal fyrirlesara verða sérfræðingar og fagfólk frá Íslandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Svíþjóð og Þýskalandi, auk kynninga frá Finnlandi, Noregi og Danmörku.

Ráðstefnan verður haldin á ensku og býður upp á vettvang fyrir fræðslu, samtal og tengslamyndun þvert á faggreinar og lönd.

Nánari upplýsingar og skráning á vef Hólaskóla

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link