Umspil fyrir mótaröðina
Árni Björn sigraði einstaklingskeppnina í Meistaradeildinni 2014.
Laust er til umsóknar fyrir keppnislið að sækja um að komast í umspil um þátttökurétt fyrir keppnisárið 2015 við það keppnislið sem var með lægsta heildarskorið í mótaröð MD sem lauk 4.apríl s.l
Þeir aðilar sem hafa áhuga á að sækja um að koma með keppnislið verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði.
- Fjórir knapar í liði
- Tilnefningar til knapaverðlauna sl. tvö ár
- Verða að vera með skráðan árangur á World Ranking lista
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
- Tölt T1
- Fjórgang
- Fimmgang
Það er eingöngu forkeppi sú einkunn gildir, enginn úrslit riðin. Þrír knapar keppa fyrir hvert lið sem sækja um þátttöku. Umsóknafrestur er til 20.ágúst n.k , umspilið verður fimmtudaginn 28.ágúst kl: 16.00 á félagssvæði Fáks Víðidal. Allar umsóknir sendist á netfangið [email protected] nánari upplýsingar veitir Kristinn Skúlason í síma 822-7009.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH