Glæsilegu WR Íþróttamóti Sleipnis lokið
Efstu knapar í gæðingaskeiði í Meistaraflokki. Ljósmynd: Facebooksíða Hestamannafélagsins Sleipnis
Glæsilegu WR Íþróttamót Sleipnis lauk í gær með A-úrslitum í hinum ýmsu greinum. Mikið af frábærum hrossum og knöpum tóku þátt og var mótið Sleipnismönnum til mikillar fyrirmyndar. Mótið var sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og er nú aðgengilegt áskrifendum sjónvarpsstöðarvarinnar líkt og allir þeir fjölmörgu viðburðir sem sýnt er frá.
Samhliða mótinu fóru fram fyrsti Skeiðleikar Skeiðfélagsins og má lesa um niðurstöður þeirra með því að smella hér.
Líkt og verða vill á slíkum mótum mættu ekki öll þau pör til A-úrslita sem unnu sér inn þátttökurétt, skapast það að stærstum hluta af því að knapar eru að ná sér í einkunnir fyrir hross sín til þátttöku á Íslands- og landsmóti, á þetta sérstaklega við um keppni í Meistaraflokki.
Engu að síður voru úrslit í öllum greinum frábær skemmtun og er hér að neðan farið yfir helstu úrslit, nálgast má heildarniðurstöður mótsins á snjallforriti HorseDay.
Meistaraflokkur
Tölt T1: Jakob Svavar Sigurðsson og Kór frá Skálakoti unnu sigur í A-úrslitum með einkunnina 8,61. Í 2.-3. sæti voru jafnir þeir Þorgeir Ólafsson á Aspari frá Hjarðartúni og Benjamín Sandur Ingólfsson á Eldingu frá Hrímnisholti með 8,50 í einkunn.
Tölt T2: Jakob Svavar Sigurðsson og Hrefna frá Fákshólum unni með einkunnina 8,62 í úrslitum í öðru sæti varð Helga Una Björnsdóttir á Björt frá Kráku með 8,12 og í þriðja sæti Gústaf Ásgeir Hinriksson á Gými frá Skúfslæk með 7,67.
Fjórgangur V1: Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum stóðu efst með 8,07 í öðru sæti varið Jakob Svavar Sigurðsson á Skarpi frá Kýrholti með 8,04 og í þrijða sætinu Guðmunda Ellen Sigurðardóttir á Flaumi frá Fákshólum með 7,57.
Fimmgangur F1: Ásmundur Ernir Snorrason og Askur frá Holtsmúla unnu með einkunnina 7,60 í öðru sæti varð Jóhanna Margrét Snorradóttir á Fronti frá Finnastöðum með 7,48 og í þriðja sæti varð Þorgeir Ólafsson á Blíðu frá Bergi með 7,31.
Gæðingaskeið PP1: Elvar Þormarsson og Elektra frá Engjavatni sigruðu keppinauta sína með einkunnina 8,42 annar varð Unnsteinn Reynisson á Hrappi frá Breiðholti í Flóa með 7,92 í einkunn og í þriðja sæti Sigurður Vignir Matthíasson á Hvirfli frá Mánaskál með 7,79 í einkunn.
Ungmennaflokkur
Tölt T1: Elva Rún Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ stóð efst í úrslitum með 7,67 í einkunn. Önnur varð Eva Kærnested á Loga frá Lerkiholti með 7,06 og í þriðja sætinu Þórgunnur Þórarinsdóttir á Hetju frá Hestkletti með 7,06.
Tölt T2: Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishólti unnu með einkunnina 7,54 í öðru sæti varð Elva Rún Jónsdóttir á Júpíter frá Votumýri 2 með 7,33 og í þriðja sæti Unnur Erla Ívarsdóttir á Víði frá Tungu með 6,92 í einkunn.
Fjórgangur V1: Þórgunnur Þórarinsdóttir og Fær frá Prestsbæ tóku efsta sætiuð með einkunnina 7,17. Jafnar í 2.-3. sæti urður Eik Elvarsdóttir á Vali frá Stangarlæk 1 og Guðný Dís Jónsdóttir á Hraunari frá Vorsabæ II með 7,03 í einkunn.
Fimmgangur F1: Sara Dís Snorradóttir sigraði keppinauta sína á Kvisti frá Reykjavöllum með 6,83, í öðru sæti varð Guðrún Lilja Rúnarsdóttir á Freydísi frá Morastöðum með 6,64 og jafnar í 3.-4. sæti voru Hrafnhildur Svava Sigurðardóttir á Smyrli frá V-Stokkseyrarseli og Friðrik Snær Friðriksson á Stormsker frá Stormi með 6,52 í einkunn.
Gæðingaskeið PP1: Matthías Sigurðsson og Gammur frá Efri-Þverá hlutu hæstu einkunna 7,46 annar varð Dagur Sigurðarson á Móral frá Hlíðarbergi með 6,96 og í þrijða sæti Elva Rún Jónsdóttir á Ásu frá Fremri-Gufudal með 6,88.
1.flokkur
Tölt T3: Vilborg Smáradóttir og Ræðu-Jarl frá Brúnastöðum unnu með einkunnina 7,17. Í öðru sæti varð Þórdís Sigurðardóttir á Árvakri frá Minni-Borg með 6,76 og í því þriðja varð Soffía Sveinsdóttir á Skuggaprinsi frá Hamri með 6,72.
Fjórgangur V2: Þórdís Sigurðardóttir og Árvakur frá Minni-Borg sigruðu keppinauta sína með 6,67. Önnur varð Ragnheiður Hallgrímsdóttir á Draupni frá Skammbeinsstöðum 1 með 6,60 og í þriðja sægi varð Soffía Sveinsdóttir á Skuggaprinsi frá Hamri með 6,47.
Fimmgangur F2: Herdís Rútsdóttir og Yrsa frá Skíðbakka 1 stóðu efstar með 6,64 í einkunn í öðru sæti varð Vilborg Smáradóttir á Vakari frá Auðsholtshjáleigu með 6,57 og jöfn í 3.-4. sæti voru þau Fanney Guðrún Valsdóttir á Vals frá Vindási og Hallgrímur Birkisson á Amalíu frá Þjóðólfshaga 1 með 6,19 í einkunn.
Gæðingaskeið PP1: Vilborg Smársdóttir stóð efst á Elju frá Óðinstorgi með 6,29 í einkunn. Annar varð Halldór Vilhjálmsson á Glókolli frá Selfossi með 4,25 og í þriðja sæti Hallgrímur Birkisson á Amalíu frá Þjóðólfshaga 1 með 3,46.
2.flokkur
Tölt T3: Berglind Ágústsdóttir og Váli frá Efra-Langholti tóku sigur með 6,22 í einkunn. Jafnar í 2.-3. sæti voru þær Marie Louise Fogh Schougaard á Lóru frá Blestastöðum 1A og Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir á Hróki frá Hafragili með 6,11.
Fjóragangur V2: Lilja Hrund Pálsdóttir og Reykur frá Prestabakka unnu sigur með einkunna 5,97, önnur varð Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir á Glæði frá Langholti með 5,93 og í þriðja sæti varð Eyrún Jónasdóttir og Dropa frá Sandá með 5,90.
Unglingaflokkur
Tölt T3: Sigurvegarar voru þau Kristín Rut Jónsdóttir og Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ með 7,06 í einkunn, Önnur varð Elísabet Líf Sigvaldadóttir á Fenri frá Kvistum með 7,00 og í þriðja sæti Elsa Kristín Grétarsdóttir á Arnari frá Sólvangi með 6,72.
Tölt T4: Gabríel Liljendal Friðfinnsson stóð efstur á Litríki frá Miðengi með 6,54 í öðru sæti varð Hrefna Kristín Ómarsdóttir á Dynjanda frá Álfhólum með 6,33 og í þriðja sæti hafnaði Ragnar Dagur Jóhansson á Mánasteini frá Vöðlum með 5,96.
Tölt T7: Aron Dyröy og Sunna frá Rauðlæk stóðu efst með einkunnina 6,33, í öðru sæti varð Karólína Ævarr Skúladóttir á Litla Brún frá Eyrarbakka með 5,67 og jöfn í 3.-4. sæti voru Helgi Björn Guðjónsson á Fjólu frá Þúfu í Landeyjum og Svavar Marý Þorsteinsdóttir á Kört frá Jórvík 1 með 5,58 í einkunn.
Fjórgangur V2: Elimar Elvarsson og Salka frá Hólateigi tóku fyrsta sætið með 6,77 í einkunn. Annað sætið kom í hlut Elsu Kristínar Grétarsdóttir á Arnari frá Sólvangi með 6,70 og í þriðja sæti hafnaði Kristín Rut Jónsdóttir á Flugu frá Garðabæ með 6,67.
Fimmgangur F2: Elsa Kristín Grétarsdóttir og Spurning frá Sólvangi stóðu efstar með 6,52. Í öðru sæti varð Ragnar Dagur Jóhansson á Öxa frá Hvammi með 6,00 og í þriðja sætinu varð Elimar Elvarsson á Ásu frá Kagaðarhóli með 4,88 í einkunn.
Barnaflokkur
Tölt T3: Helgi Hrafn Sigvaldason og Sumarliði frá Hárlaugsstöðum urðu efstir með einkunna 6,50. Í öðru sæti varð Eva Hrönn Ásmundsdóttir á Rafni frá Melabergi með 6,39 og í þriðja sætinu Viktoría Huld Hannesdóttir á Írisi frá Ási 2 með 6,22.
Tölt T7: Bryanna Heaven Brynjarsdóttir og Saga frá Dalsholti stóðu efstar með 6,42 í einkunn í úrslitum. Jöfn í 2.-3. sæti voru Viðar Ingimarsson á Frey frá Kvistum með og Katla Dís Hannesdóttir á Sigurpáli frá Varmalandi með 6,08 í einkunn.
Fjórgangur V2: Helga Rún Sigurðardóttir og Flipi frá Bergsstöðum á Vatnsnesi unnu þessa grein með 6,63 í úrslitum. Í öðru sætu varð Viktoría Hulda Hannesdóttir á Þin frá Enni með 6,23 og í þriðja sæti varð Bryanna Heaven Brynjarsdóttir á Sögu frá Dalsholti með 6,03.
Glæsilegu WR Íþróttamóti Sleipnis lokið
150 plássum bætt við
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
„Höfum þróast með því sem er að gerast í heiminum“