Eiðfaxi TV Sneisafull dagskrá framundan á EiðfaxaTV

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Myndavélar okkar verða rauðglóandi á næstu vikum og mánuðum og nægt framboð af útsendingum á EiðfaxaTV

Nóg um að vera í allt sumar

Það er mikið um að vera á streymisveitunni EiðfaxaTV um helgina og nóg af viðburðum framundan í beinni útsendingu. Síðastliðna tvo daga hefur verið sýnt beint frá Margretarhof Festival í Svíþjóð og heldur það mót áfram fram á sunnudag. Hér heima á Íslandi verður svo sýnt frá Gæðingamóti Fáks og úrtöku fyrir Landsmót, Íþróttamóti Spretts og WR Íþróttamóti Geysis.

Hægt er að nálgast dagskrá, ráslista og niðurstöður allra þessarra viðburða á snjallforriti HorseDay.

Sneisafullir sumarmánuðir

Í næstu viku, þá síðustu í maí, verður svo sýnt frá kynbótasýningu á Rangárbökkum við Hellu sem og kynbótasýningum á Margretarhofi og Romme í Svíþjóð. Þá verða í beinni útsendingu gæðingamót og úrtökur hjá annars vegar Hestamannafélaginu Sörla og svo sameiginleg úrtaka hjá Sleipni, Ljúf og Háfeta og Skeiðleikar Skeiðfélagsins. Júní mánuður tekur þá við með magnaðri dagskrá þar sem í fyrstu vikunni í júní verða alls þrjár kynbótasýningar í gangi hér á Íslandi þ.e. á Hólum, Rangárbökkum og í Sörla. Einn stærsti íþróttaviðburður ársins hefst þá einnig þá viku, Reykjavíkurmeistaramót Fáks.

Dagskrá 1.viku í júní 1.-7.

  • Kynbótasýning  á Rangárbökkum
  • Kynbótassýning á  Sörlastöðum
  • Kynbótasýning á Hólum
  • Reykjavíkurmeistaramót Fáks

Dagskrá 2.viku í júní 8.-14.

  • Kynbótasýning Akureyri
  • Kynbótasýning Rangárbökkum
  • Kynbótasýning Mið-Fossum
  • Kynbótasýning Sörlastöðum
  • Gæðingamót og úrtaka Spretts og Sóta
  • Skeiðleikar 3
  • Gæðingamót og úrstaka Geysis, Jökuls, Kóps og Sindra
  • Kynbótasýning í Axevalla í Svíþjóð

Dagskrá 3.viku í júní 15.-21.

  • Íslandsmót fullorðinna og ungmenna á Sörlastöðum í Hafnarfirði
  • Kynbótasýning á Hólum
  • Kynbótasýning Rangárbökkum
  • Kynbótasýning í Víðidal

Dagskrá 4.viku í júní 22.-28.

  • Kynbótasýning Rangárbökkum
  • Kynbótasýning Hólum
  • Kynbótasýning Víðidal
Landsmót rúsínan í pylsuendanum

Allir þessir viðburðir leiða okkur svo að stór viðburðinum Landsmóti á Hólum í Hjaltadal sem þeir áskrifendur okkar sem eru í ársáskrift geta fylgst með!!

Tryggðu þér áskrift í dag og fylgstu með í allt sumar!

HÉR ER HÆGT AÐ GERAST ÁSKRIFANDI AÐ EIÐFAXA TV

Með ársáskrift tryggir þú þér allt efni

Með því að velja ársáskrift slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt miðað við mánaðaráskrift og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link