„Hún var hlaupaglöð og alveg einstök með það“
Bjarni og Hera einbeitt á svip er þau koma út úr rásbásum á Landsmóti árið 2016
Kappreiðar á Landsmótum hestamanna eru órjúfanlegur hluti af sögu og sál mótanna. Á fyrstu áratugum Landsmóta máttu kappreiðarnar heita hápunktur samkomunnar; þar áttu stökk- og brokkreiðar jafnt tilkall til sviðsljóssins og skeiðgreinar. Landsmótin hafa þróast talsvert síðan þá og í dag standa skeiðgreinarnar einar eftir sem fulltrúar kappreiðanna. Vinsældir þeirra halda þó ennþá velli. Keppnin er jafnan ákaflega spennandi og umfram allt auðskiljanleg: fljótasti hesturinn sigrar.
Nú þegar Landsmót hestamanna er framundan í sumar að Hólum í Hjaltadal, er tilvalið að líta um öxl. Við skulum bregða okkur sem snöggvast áratug aftur í tímann og rifja upp keppni í 250 metra skeiði frá því að mótið var síðast haldið í Hjaltadalnum, árið 2016.
Heimsmet í Hjaltadal
Margir fljótir hestar voru skráðir til leiks í 250 metra skeiði á þessu móti. Fyrir fram mátti þó búast við því að ríkjandi sigurvegarar í greininni frá Landsmótinu 2014 yrðu illviðráðanleg, en það voru þau Bjarni Bjarnason og Hera frá Þóroddsstöðum. Á mótinu 2014 höfðu þau sett stórkostlegt heims- og Íslandsmet þegar þau komu í mark á tímanum 21,76 sekúndum. Svo segir frá í tölublaði Eiðfaxa árið 2016:
„Eftir fyrstu umferð í básaskeiðinu leit þetta ekki alltof vel út en tímarnir voru ekki merkilegir. Í seinni umferðinni var þetta fljótt að breytast og fóru flestir á bestu tímunum sínum í ár.“
Þetta átti svo sannarlega við um Bjarna og Heru. Þau náðu frábærum spretti í seinni umferðinni og tryggðu sér sigurinn á nýju, glæsilegu heims- og Íslandsmeti: 21,41 sekúndum. Ekki nóg með að slá metið, heldur unnu þau keppinauta sína með töluverðum yfirburðum. Annar á þessu móti varð Gústaf Ásgeir Hinriksson á Andra frá Lynghaga á tímanum 22,13 sekúndum og í þriðja sæti hafnaði Árni Björn Pálsson á Dalvari frá Horni I á 22,34 sekúndum.
Endapunktur á hreint ótrúlegum ferli
Til að rifja frekar upp þetta magnaða augnablik sló blaðamaður Eiðfaxa á þráðinn til Bjarna Bjarnasonar. Þegar hann lítur til baka til mótsins fyrir tíu árum er honum efst í huga hve dýrmætur þessi endapunktur var. „Þetta var ákveðinn toppur á ferlinum, allavega hingað til, og í rauninni endapunktur hjá mér og Heru saman á keppnisvellinum,“ segir Bjarni. „Ég tók þátt í fleiri kappreiðum þetta sumar með hana, en hún var orðin fylfull þarna þegar þetta gerðist. Það að vinna Landsmót var því ákveðið markmið sem náðist og magnað að enda samstarfið á þann hátt.“
Geta Heru á skeiði er enginn tilviljun, hún er kynborin kappreiða-vekringur, undan stóðhestinum Kjarvali frá Sauðárkróki og skeiðhestamóðurinni Gunni frá Þóroddsstöðum. En hvað var það í raun sem gerði Heru svona sérstaka sem skeiðhest? „Hera var rosalega heilsteypt hross; stór, falleg og öflug,“ segir Bjarni aðspurður. „Hún átti svo auðvelt með þetta allt saman og var til dæmis algjör snillingur í gangskiptingunni frá stökki niður í skeið, hún gat framkvæmt hana á fullri ferð á stökki. Svo fylgdi henni alveg ótrúlegur kraftur á skeiðinu. Þegar þarna var komið á okkar ferli þurfti ég lítið að hvetja hana, hún var hlaupaglöð og alveg einstök með það. Hún var þarna orðin 11 vetra gömul og búin að vinna glæsta sigra. Ég var búinn að keppa á henni frá því hún var sex vetra, þannig að hún var orðin vel sjóuð. Ég þekkti vel inn á hana og vissi nákvæmlega að hverju ég gekk.“

Bjarni og Hera á Landsmóti árið 2014
Eins og áður kom fram var Hera orðinn fylfull á þessu móti, en finnur Bjarni fyrir einhverri eftirsjá yfir því að hafa ekki keppt á henni lengur? Hann neitar því „Ég er bara ekki þannig gerður að vera keppnissjúkur, eða að einhverjir sigrar hafi verið aðalmarkmiðið hjá mér. Ég vildi viðhalda þessu kyni og fá út af henni afkomendur, mér finnst það dýrmætara en fleiri titlar eða sigrar. Móðir hennar var mikill vekringur og gaf mikla vekringa og Hera átti að taka við því hlutverki, sem hún virðist gera vel. Hún varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og tvöfaldur Landsmótssigurvegari, auk þess að setja þessi met, þannig að hún var búin að sanna sig nægilega. Auk þess var ég kominn með aðra hesta sem ég vildi gefa meira pláss, tækifæri og tíma til að sinna.“
Nú þegar Landsmótið er að snúa aftur að Hólum í sumar, liggur auðvitað beint við að spyrja hvort við megum eiga von á því að sjá Bjarna sjálfan mæta á brautina í Hjaltadalnum. Hann dregur ekki úr því að framtíðin gæti geymt spennandi hluti, þótt planið fyrir sumarið sé jarðbundið. „Nei, ég er ekkert beint að stefna með neitt þangað, ég er með tvær dætur Heru sem eru ekki byrjaðar að keppa. Það er alveg óvíst hvað gerist með þær í framtíðinni. Ég stefni á að koma eitthvað fram með þær í sumar; það er ekkert endilega markmið að komast á Landsmót, heldur bara að koma þeim á framfæri og byggja þær upp.“
Að lokum lýsir Bjarni mikilli ánægju með val á mótstað og hlakkar til sumarsins í Hjaltadalnum. „Mér finnst það frábært. Ég á mjög góðar minningar frá Landsmótinu á Hólum síðast og fannst það heppnast mjög vel. Það er gaman að vera á Hólum, aðstaðan þarna er til fyrirmyndar og það er erfitt að toppa þann stað sem Landsmótsstað.“
Við skulum rifja augnablikið upp og heyra viðtal við Bjarna Bjarnson og sjá upprifjun á sprettinum sem tekið er úr umfjöllunarþætti um Landsmót 2016 sem sýndur var á RÚV og er einnig að finna í Gullkistunni á EiðfaxaTV.
Sigurvegarar á Landsmóti í 250m skeiði
2024 Konráð Valur Sveinsson, Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 21,50
2022 Konráð Valur Sveinsson, Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu 22,10
2018 Konráð Valur Sveinsson, Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 21,15
2016 Bjarni Bjarnason, Hera frá Þóroddsstöðum 21,41
2014 Bjarni Bjarnason, Hera frá Þóroddsstöðum 21,76
2012 Sigurbjörn Bárðarson, Flosi frá Keldudal 22,58
2011 Ævar Örn Guðjónsson, Gjafar frá Þingeyrum 23,67
2008 Sigurbjörn Bárðarson, Flosi frá Keldudal 22,95
2006 Daníel Ingi Smárason, Óðinn frá Efsta-Dal I 22,53
2004 Sigurbjörn Bárðarson, Óðinn frá Búðardal 22,20
2002 Logi Laxdal, Kormákur frá Kjarnholtum 22,67
2000 Sveinn Ragnarsson, Framtíð frá Runnum 22,07
1998 Ragnar Hinriksson, Bendill frá Sauðafelli 22,61
1994 Sigurbjörn Bárðarson, Ósk frá Litla-Dal 22,4
1990 Sigurbjörn Bárðarson, Leistur frá Keldudal 22,59
1986 Ragnar Hinriksson, Litli-Jarpur frá Stóru-Ásgeirsá 22,0
1982 Aðalsteinn Aðalsteinsson, Villingur frá Möðruvöllum 22,5
1978 Aðalsteinn Aðalsteinsson, Fannar frá Skeiðháholti 23,0
1974 Aðalsteinn Aðalsteinsson, Óðinn frá Gufunesi 23,2
1970 Þorgeir Jónsson, Óðinn frá Gufunesi 25,8
1966 Sigurður Ólafsson, Hrollur frá Laugarnesi 26,4
1962 Bjarni Bjarnason, Gustur frá Hæli 24,0
1962 Sigurður Ólafsson, Logi frá Gufunesi 24,0
1958 Skúli Kristjónsson, Trausti frá Hofsstöðum 24,5
Landsmót 2026 í beinni á EiðfaxaTV
Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið er ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.
„Hún var hlaupaglöð og alveg einstök með það“
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
„Ósanngjarnt gagnvart dómurum“