RML Kynbótasýning á Rangárbökkum hefst í dag

  • 26. maí 2026
  • Fréttir
Reiðdómar sýndir í beinni útsendingu á EIðfaxaTV

Önnur vika kynbótasýninga á Íslandi hefst nú dag á Rangárbökkum við Hellu. Líkt og á öllum kynbótasýningu hér á landi verður sýnt frá reiðdómum í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Dómarar á þessari sýningu eru þau Þorvaldur Kristjánsson, Svanhildur Hall og Víkingur Gunnarsson. Sýningarstjóri er Guðbjörn Tryggvason, þulur og ritari er Brynja Valgeirsdóttir. Áætlað er að 90 hross verði sýnd þessa viku með forsýningum í dag, miðvikudag og fimmtudag og yfirlitssýningu á föstudaginn.

Hægt er að nálgast hollaröðun á vef RML með því að smella hér.

Einnig er vert að minnast á það að EiðfaxiTV er einnig með beina útsendingu frá yfirliti á kynbótasýningu á Margretarhof í Svíþjóð í dag.

Tryggðu þér áskrift í dag og fylgstu með í allt sumar!

HÉR ER HÆGT AÐ GERAST ÁSKRIFANDI AÐ EIÐFAXA TV

Með ársáskrift tryggir þú þér allt efni

Með því að velja ársáskrift slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt miðað við mánaðaráskrift og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link